Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð Umhverfisnefndar 38

38. fundur

Fundur haldinn í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn
13. október 2003 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Björk Pálsdóttir, og starfsmaður nefndarinnar Helgi Már Pálsson.


1. Umhverfisverðlaun 2003
Auglýst var eftir tilnefningum í Eystrahorni og á Skjávarpinu, en engar ábendingar hafa borist. Rætt var um ákveðin félög og fyrirtæki hér á Höfn sem væru verðug verðlaunanna. Samþykkt var að auglýsa aftur eftir tilnefningum.

2. Sina og hætta á sinubrunum á opnum svæðum
Eldvarnareftirlitsfulltrúi hefur gert athugasemdir vegna hættu á sinubruna í Álaugarey og í Óslandi. Rætt var um hvort leyfa ætti tímabundna og afmarkaða beit hesta á þessum svæðum. Nefndin fellst á að gera eina tilraun á þessum svæðum undir umsjón tækni- og umhverfissvið og leggur áherslu á að girðingar verði vandaðar.

3. Umhverfisþing
Kynnt var fyrirhugað umhverfisþing umhverfisráðuneytisins, sem að þessu sinni mun fjalla um náttúruverndarmál og einkum drög að náttúruverndaráætlun, sem umhverfisráðherra hyggst leggja fram nú í haust. Rætt var um fyrri bókanir og samþykkt að ýtrekar þær á umhverfisþinginu. Formaður og starfsmaður munu sækja þingið, sem hefst á morgun.

4. Fráveitumál
Farið var yfir tillögur í fráveitumálum þéttbýlisins. Samþykkt var að mikið mengandi matvælavinnslur hreinsi sitt afrennslisvatn með viðunandi hætti áður en því er veitt í fráveitukerfi bæjarins, staðsetning hreinsistöðvarinnar verði í Óslandi sunnan Ásgarðs og að útrás frá því verði með Óslandinu vestanverðu og í jaðri fólkvangsins og síðan verði hún leidd út í Melaálinn, ef niðurstöður straumlíkansins frá Vatnaskilum sýni fram á það sem bestu lausn. Þessi tillaga er merkt sem 2 D í forhönnunarskýrslu Línuhönnunar frá júní s.l.

5. Önnur mál
Egill ræddi um fok á sandi við Hlíðarsand í Lóni og möguleika á að nota heyrúllur til að hefta fok þar. Rætt verði við vegagerðina um þessi mál. Hann taldi einnig að huga þyrfti að endurbótum eða nýju svæði fyrir kartöflugarða á næsta ári.

Björk spurðist fyrir um starfsemi í gamla Smur og dekk við Bugðuleiru hvort þar sé komin fiskvinnsla, hreinsun á leikvöllum í þéttbýlinu sé ábótavant, stöðu á hreinsunarátaki á fyritækjalóðum og vettvangsskoðun á landbroti í sveitarfélaginu.
Nefndarmenn ýtreka fyrri tilmæli vegna hreinsunar á fyrirtækjalóðum og að fljótlega verði farið í skoðunarferð á landbroti.


Fundi slitið kl. 18:15


Egill Jónasson
Helgi Már Pálsson
Þóra V Jónsdóttir
Björk Pálsdóttir


Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica