Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
80. fundur
28. júní 2006 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Björn Sigfinnsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Gestur Halldórssson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið til þessa fyrsta fundar á kjörtímabilinu.
Gengið var til dagskrár:
1. Skipan æskulýðs- og tómstundaráðs, skipting embætta og fundartími.
Aðalmenn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar eru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Helga Lucía Bergsdóttir varaformaður, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Björn Sigfinnsson, og Sindri Ragnarssson. Varamenn eru: Miralem Haseta, Sigþór Jónsson, Svala Bryndís Hjaltadóttir, Maríanna Jónsdóttir og Gestur Halldórsson. Fundir ráðsins eru haldnir fjórða hvern mánudag í mánuði og hefjast kl. 17:05. Að öllu jöfnu heldur ráðið fyrsta fund fjórða mánudag í ágúst og lýkur fundum fjórða mánudag í maí á næsta ári. Ráðsfólk hefur fengið gögn í hendur sem varða verksvið ráðsins og tilhögun funda.
2. Uppbygging íþróttamannvirkja. Staðan í dag. Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu ? og félagssviðs sem á sæti í framkvæmdanefnd um uppbyggingu íþróttamannvirkja fór yfir stöðu mála og svaraði fyrirspurnum ráðsfólks. Ekki er ákveði hvenær framkvæmdir verða boðnar út.
3. Starfsemi Þrykkjunnar í haust ofl.
Haukur viðraði tilhögun á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar í haust þar sem helsta breytingin er að hafa opið strax og skóla lýkur fyrir 8.- 10. bekk tvo daga í viku og kvöldopnun á föstudagskvöldum. Hann reifaði einning samstarf við FAS um starfsmann sem starfaði að félagsmálum með nemendum í skólanum. Þetta var viðhaft á haustönn 2005. Haukur sagði frá því að rampurinn sem pantaður var í vor væri kominn til landsins og næsta skref væri að setja hann upp. Sagði líka frá því að í dag fara tvö ungmenni frá Höfn til Þórshafnar í Færeyjum á ungmennamót ásamt öðrum íslenskum ungmennum til móts við önnur ungmenni frá hinum Norðurlöndunum. Á mótinu sem nefnist Ung í Norden er tekið þátt í ýmsum listasmiðjum og lýkur mótinu á sameiginlegri sýningu allra smiðjanna auk þess eru svokölluð opin svið þar sem hægt er að troða upp. Í fyrra fóru tvö ungmenni frá Höfn á samskonar mót.
Ráðið telur mjög nauðsynlegt að ráðinn verði starfsmaður í heila stöðu til að sinna félagsstörfum ungs fólks á Hornafirði bæði í félagsmiðstöð og framhaldsskóla. Þar sem starfið í félagsmiðstöð hefur verið 60% og framhaldsskólinn er tilbúinn að skoða aðkomu með 30% starfsstarfshlutfall. Leggur ráðið til að starfshlufallið í félagsmiðstöðinnni verði hækkað í 70%. Líka vill ráðið benda á að starfsmaður sem yrði ráðinn í félagsstörfin gæti komið inn í stjórnun í Vinnuskólanum á sumrin.
Næsti fundur ráðsins verður að öllu óbreyttu mánudaginn 28. ágúst nk.
Fundi slitið kl. 19:00.


