Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
55. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 4. desember 2003 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Björk Pálsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Styrkveiting til íþróttamanna.
Rætt var um að styrkja ungt íþróttafólk og var Hauki falið að óska eftir ábendingum frá íþróttafélaögum á Hornafirði þar um. Einning kemur til greina að styrka einstakling til að vinna að ákveðnu verkefni í samstarf við ÆTH.
2. Fjárhagsáætlun 2004.
Farið var yfir fjárhagsáætlun ÆTH fyrir næsta ár. Æskulýðs- og tómstundaráð leggur mikla áherslu á að í tengslum við fjárlagagerð fyrir árið 2004 að íþróttamannvikjum í sveitarfélaginu verði viðhaldið með eðlilegum hætti. Dæmi eru um að slys hefur hlotist af t.d. ónýtu gólfefni í íþróttahúsinu á Höfn. Þá er starfsmannaaðstöðu bæði í íþróttahúsi á Höfn og sundlaug mjög ábótavant. Skorar ráðið á háttvirta bæjarstjórn að leggja fjármuni í eðlilegt viðhald áður en húsunum verður hreinlega lokað.
3. Hækkun á gjaldskrá sundlaugar, lokun og opnun.
Nokkrar umræður urðu um hækkun gjaldskrár sundlaugar fyrir næsta ár. Haukur greindi frá gjaldskrám frá nokkrum sundlaugum víða af á landinu og var verð æði misjafnt. Nokkrar voru með hærra verð en hér en mun fleiri með lægra og þá sérstaklega í þeim sundlaugum sem hita upp með jarðvarma. Ákveðið var að leggja til að stakt gjald fullorðinna hækkaði um 10% úr 250 kr.í 275 kr. og stakt gjald barna um 10% úr 110 kr. í 120 kr. 15 miða kort fullorðinna hækki um 6 % eða úr 2550 kr. í 2700 kr. 15 miða kort barna hækki ekki verði áfram 1100 kr. Ársgjöldin hækki um 10% úr 17500 kr. í 19.000 kr. Ráðið leggur til að sundlauginni verði lokað sunnudaginn 14 desember og henni aftur upplokið um miðjan janúar á næsta ári.
4. Sparkvellir KSÍ.
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að styrkja gerð sparkvalla úr gervigrasi á skólalóðum út á landsbyggðinni að stærðinni 16 x 27 m. KSÍ sér um að leggja og útvega grasið á vellina en sveitarfélögin sjá um undirlag og umhverfið í kring. Von er á gögnum frá KSÍ þar sem fram kemur hvernig á að sækja um völl. Æskulýðs- og tómstundaráð hvetur til þess að gengið verði til samstarfs við KSÍ um þessa framkvæmd og haft verði samráð við skólastjóra Heppu- og Hafnarskóla um málið.
Þórgunni og Hauk falið að greina skólastjórum frá þessu.
5. Unglingalandsmót UMFÍ 2005.
Friðrik greind frá fundi með formanni Sindra Magnúsi Jónasyni þar sem fram kom að Magnús hefði sótt þing Ungmennafélags Íslands á dögunum og þar hefði forysta þess hvatt USÚ til að sækja um að halda Unglingalandsmót UMFÍ árið 2005. Æskulýðs- og tómstundaráð ræddi málið og leist vel á hugmyndina og taldi að þetta gæti orðið mikil lyftistöng fyrir íþrótta-og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu.
6. Samþykkja síðustu fundargerð.
Fundargerðin var samþykkt samhljóða.
7. Önnur mál.
Haukur kynnti þá forvarnavinnu sem hann hefur verið að vinna með unglingum í 8. bekk Heppuskóla undanfarið. Í þessari vinnu hefur verið rætt um ýmislegt sem varðar forvarnir og endað á því að unglingarnir vinna plaggöt sem verða litprentuð og kynnt í skólanum og eins í öðrum skólum. Skoðaði ráðið plaggatdrögin og voru nokkuð ánægt með þau. Verður verkefnið klárað í næstu viku með kynningum.
Friðrik mynnti á að í haust hefði hann lagt til að íþróttafélögin á Hornafirði kynntu starfsemi sína á aðgengilegum stað. Hauki var falið að vinna að málinu sem fyrst.
Fundi slitið kl. 19:10.
Friðrik Ingvaldsson Valdemar Einarsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Björk Pálsdóttir
Haukur H. Þorvaldsson.


