Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
33. fundur
Fundur haldinn í atvinnu- og ferðamálanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 8. janúar 2002 kl. 17:10 í húsnæði Nýherjabúða við Krosseyjarveg.
Mættir voru: Þorbjörg Arnórsdóttir, Anna Egilsdóttir, Magnús Guðjónsson Þóra V. Jónsdóttir og Valgeir Hjartarson. Einnig Óðinn Gunnar Óðinsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Stefna Hornafjarðar í atvinnumálum
Óðinn Gunnar sagði frá vinnuferlinu við stefnumótunina. Ítarlega var rætt í nefndinni um þau drög sem fyrir liggja og fram komu ýmsar athugasemdir og ábendingar. Óðinn Gunnar mun ljúka frágangi skýrslunnar innan skamms sem þá verður tekin til afgreiðslu í bæjarráði. Atvinnu- og ferðamálanefnd leggur mikla áherslu á virka eftirfylgni við stefnu sveitarfélagsins í þessum málaflokki.
2. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl: 19:00
Þorbjörg Arnórsdóttir
Þóra V. Jónsdóttir
Magnús Guðjónsson
Valgeir Hjartarson
Anna Egilsdóttir


