Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 54
54. Fundur
Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar, haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 8. desember 2009 og hófst hann kl. 12:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Gauti Árnason,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200912019 - Staða á atvinnumarkaði
Lagt fram skjal sem sýnir þróun atvinnuleysis í sveitarfélaginu frá jan-0kt. 2009. Alls voru 17 atvinnulausir í október. Langtímaatvinnuleysi er lítið sem ekkert.
Rætt um horfur á vinnumarkaði í vetur. Kom fram að óvissa er mikil með uppsjávarveiði en vinnsla hefur verið aukin á bolfiski. Einnig rætt um framkvæmdir á vegum sveitafélagsins og annarra aðila. Kom fram að framkvæmt verður fyrir 200 miljónir í A hluta og 92 miljónir í B hluta.
2. 200902078 - Sauðfjárveikivarnir
Hjalti gerði grein fyrir fundi með fulltrúum sauðfjárbænda og umræðum á borgarafundum í Hrollaugsstöðum og Holti. Rætt um að gera Hornafjarðarfljót að afréttarlínu. Bæjarstjóra falið að vinna málið í samráði við hagsmunaaðila.
Undir þessum lið var rætt um stuðning ríkisins vegna veiða á ref. Fram komu áhyggjur af þróun þessara mála. Upplýst að bæjarráð hafi mótmælt niðurskurðinum.
3. 200705114 - Önnur mál
Spurt um áhuga á atvinnu- og rannsóknasjóði. Upplýst að töluverður fjöldi hafi óskað eftir upplýsingum og von er á nokkrum umsóknum.


