Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 57
57.fundur
Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 10. febrúar 2010 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Gauti Árnason, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200705034 - Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði
Lagt fram lögfræðiálit frá Regula um hvernig megi takmarka flutning fjár yfir Hornafjarðarfljót. Atvinnumálanefnd gerir tillögu um að í samþykkt um búfjárhald verði sett bann við flutningi fjár yfir Hornafjarðarfljót. Undantekning verði um flutning fjár frá Svínafelli í Nesjum vegna þeirrar hefðar sem þar hefur skapast að fé frá Svínafelli gangi vestan Fljóta.
Formaður gerði grein fyrir samtali við bónda sem kvartaði undan ágangi fjár af öðrum bæjum á sitt land. Fundarmenn ræddu um að hægt er að setja á ítölu eða hagatoll. Starfsmanni falið að taka saman greinargerð um ferli við slíka vinnu, meta kostnað og hversu tímafrek vinnan yrði.
2. 200912019 - Staða á atvinnumarkaði
Upplýsti að 33 voru á skrá þann 8. febrúar. Bæjarstjóri upplýsti að óskað hafi verið eftir nánari gögnum.
3. 200904073 - Vinnumarkaðsaðgerðir á vegum Vinnumálastofnunar
Til kynningar.
4. 200705114 - Önnur mál
Formaður gerði grein fyrir samtali við atvinnurekanda um samkeppnismál.
Hjalti gerði grein fyrir að fengist hafi styrkur frá Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar í að kanna möguleika á sjávarvirkjunum í Hornafirði. Verkefnið er unnið í samstarfi Sveitarfélagsins, Siglingastofnunar, Verkís og Nýsköpunarmiðstöðvar.


