Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 58
58. fundur
Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 19. apríl 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 200912019 - Staða á atvinnumarkaði
Kom fram að alls eru 43 á atvinnuleysiskrá. Kom fram að tugir fólks fái vinnu núna í sumar í fiskvinnslu, landbúnaði og ferðaþjónustu.
2. 200705034 - Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði
Lagt fram bréf dags. 14. apríl 2010 frá sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytinu um athugasemdir um breytingar að samþykkt um búfjárhald sem sent var frá sveitarfélaginu í mars 2010. Atvinnumálanefnd sammála um að athugasemdir frá ráðuneytinu séu ekki stórvægilegar og leggur til að tekið verði tillit til þeirra, samþykktinni breytt í samræmi við þær og lagðar fram á fundi bæjarstjórnar í maí.
3. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Farið yfir stöðu verkefna í atvinnu- og rannsóknasjóð sem úthlutað var á árinu 2009. Rætt um að koma kynningu á netið.
4. 201004032 - Heimafóðurverkefni
Ásgrímur fór yfir umsóknin um styrk í heimafóðurverkefnið. Hann rifjaði einnig upp að atvinnumálanefnd hafi úthlutað fjármunum úr atvinnu- og rannsóknasjóði í verkefni tengt kornþurkun. Nefndin sammála um að úthluta ekki til heimafóðurverkefnis að sinni.
5. 200705114 - Önnur mál
Rætt um eldgosið í Eyjafjallajökli og heilbrigði búfjár. Kom fram að almannavarnarnefnd hefur farið yfir málið og fylgist með framvindu gossins og mögulegs öskufalls.


