Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsenfndar 58
58. fundur
Byggingar- og skipulagsnefnd 58. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 7. apríl, 2005, kl. 12:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Deiliskipulag í Freysnesi
Lagðir voru fram deiliskipulagsuppdrættir fyrir frístundabyggð í landi Freysnes í Öræfum. Tillagan er í samræmi við áðurgerða breytingu á aðalskipulagi sem staðfest hefur verið. Uppdráttur dags. jan. 2004 og með breytingum jún. 2004, verk nr. 2.101. unnin af Ullu R Pedersen.
Engar athugasemdir gerðar við deiliskipulagið og það samþykkt af hálfu nefndarinnar.
2. Aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag á Fagurhólsmýri
Lagðir voru fram tillöguuppdrættir af minniháttar breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Breytingin felst í stækkun núverandi verslunar og þjónustureits við Fagurhólsmýri. Tillagan samþykkt. Einnig var lögð fram tillaga af deiliskipulagi fyrir hótelgistingu á stækkuðum verslunar- og þjónustureit ( sjá 1. mgr. ). Uppdráttur unnin af Landmótun dags. 18. mars 2005. Einnig lág fyrir bréf, dags. 20. mars s.l. frá landeigendum þar sem þeir óska eftir leyfi sveitarstjórnar til að deiliskipuleggja svæðið.
Samþykkt að óska eftir því við sveitarstjórn að heimila deiliskipulagsferlið.
3. Endurskoðun aðalskipulags
Helgi Már fyrir yfir gerð aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar, en unnið er að endurskoðun þess. Næsti fundur mun fjalla um tillögur vegna endurskoðunar á aðalskipulagi.
4. Önnur mál.
Engin
Fundi slitið 13:30


