Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 60
60. fundur
Byggingar- og skipulagsnefnd 60. fundur FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 12. maí, 2005, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson og Torfi Friðfinnsson. Einnig starfsmenn HAUST HelgaHreinsdóttir og Borgþór Freysteinsson og Hákon Valdimarsson og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði.
1. Skálafell 2. Breyting í gistiskáli
Sótt er, í bréfi dags. 26.04. 2005, um leyfi til að breyta íbúðarhúsinu á Skálafelli 2, Suðursveit í gistiskála, þar sem hópar geta leigt húsið. Með umsókn fylgir teikning með fyrirhugaðri innréttingu hússins, gerð af Vali Sveinssyni, byggingarfr. dags. 26.04.2005. Verknr. SUÐ-TOF-0501 Umsækjandi er Valur Sveinsson, f.h. eigenda. Erindið samþykkt með fyrirvara um athugasemdir heilbrigðisfulltrúa vegna fráveitu og neysluvatns og kvöð um handlaugar á herbergi eða undanþágu vegna þeirra. Einnig er óskað eftir að flóttaleið á efri hæð verði færð frá suðurhlið á vesturgafl hússins. Torfi tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
2. Litlabrú 1 Upplýsingaskilti
Sótt er, í bréfi dags.14. apríl, 2005, um leyfi til að setja upp upplýsingaskilti með nafni Miðbæjar á lóðinni við húsið nr. 25 við Hafnarbraut. Nánari útfærsla skiltisins liggur ekki fyrir enn. Bæjarráð Hornafjarðar, sem erindið er sent til, vísaði því, hinn 22. apríl, 2005, til byggingar- og skipulagsnefndar. Umsækjandi er Húsfélagið að Litlubrú 1. Óskað eftir fullnaðar gögnum um útlit og staðsetningu skiltisins. Erindinu frestað.
3. Hæðir, Skaftafelli. Símaskúr og bílskúr.
Sótt er í bréfi, dags. 09.05.2005, um leyfi til að byggja bílskúr og símahús, í einni og sömu byggingu, í Hæðum, Skaftafelli, samkv. teikn. Svavars M. Sigurjónssonar, byggingartæknibræðings, og árituðum af Gústaf B. Ólafssyni, byggingarfræðingi. Teikn. dags. 19.04.2005. Nr. A-01 til A-03 Umsækjandi er Ragnar Fr. Kristjánsson, þjóðgarðavörður í Skaftafelli Erindið samþykkt
4. Aðalskipulag Sveitarfél. Hornafj. Endurskoðun Framhald frá síðasta fundi. Ekki eru gerðar neinar athugasemdir við kafla 3.5. Samgöngur. Hvað varðar kafla 3.6.1 Landgræðsla skógrækt, þá er það gert að tillögu að ákvæði verði sett inn í kaflann um skógrækt að hún verði ekki heimiluð þannig að hún skyggi á víðfemt útsýni frá vegi séð og að skipulag skógræktarsvæða verði heldur ekki samfelld heild meðfram honum heldur minni þyrpingar sem skerði ekki útsýni. Í kafla 3.6.2 Landfyllingar á Höfn, er gert að tillögu að ekki verði fyllt í reitinn neðan Ránarslóðar en gert áfram ráð fyrir fyrirhuguðum vegi frá Sandbakkaveg og út í Ósland, þó þannig að þar gæti flóðs og fjöru. Í vegstæðið er einnig gert ráð fyrir að fyrirhuguð frárennslislögn komi auk þess sem núverandi vegakerfi gerir ráð fyrir þessu. Ekki er talin þörf á fyllingu þarna vegna skorts á íbúðalóðum. Í kafla 3.6.6 var rætt um hverfisvernd vegna votlendis vestan Hólmsár og að Kolgrímu. Einnig var rætt um hugsanleg svæði fyrir fuglafriðlönd til að auka ásókn ferðamanna, heimild fyrir búgarðabyggð á lögbýlum, opnari möguleikum í frístundabyggð, umferðaskipulag með skilgreiningu á svokölluðum 30 km hverfum og hugmyndum af svæðum á náttúruminjaskrá.
5. Afgreiðsla ,,smærri mála, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
1. 09.05.2005. Jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi (endurnýjun) fyrir veitingahúsið í Jöklaseli, Suðursveit Engar athugasemdir
6 . Önnur mál.
Erindi frá Öræfum ehf, ódagsett, undirritað af Ingibjörgu Guðjónsdóttur, þar sem óskað er eftir að samþykktur verði gistiskáli á Hofi í Öræfum, Vesturhús. Teikn dags. 2/5 2005 nr. 05132 sýnir að um er að ræða rúm fyrir 22 einstaklinga, en aðeins eru 2 salerni í húsnæðinu. Kröfur gera ráð fyrir 1 salerni fyrir hverja 10 gesti. Erindið samþykkt með fyrirvara um athugasemdir heilbrigðisfulltrúa vegna fyrrnefndra athugasemda og um fráveitu og neysluvatn og kvöð um handlaugar á herbergi eða undanþágu vegna þeirra.
Teikningar af Gerði, Suðursveit, gerðar af Sveini Ívarssyni, þar sem fram koma breytingar ( dags. 10. maí 2005 ) á áður samþykktri teikningu frá 1. ágúst 2004. Um er að ræða viðbyggingu fyrir 2 baðherbergi á austurenda hússins, stækkun á borðstofu og forstofu auk baðherbergis þar og vindfang við norðurinngang Ekkert formlegt erindi fylgdi teikningum. Ekki eru gerðar athugasemdir við breytingar á framlögðum teikningum af hálfu nefndarinnar, en óskað eftir formlegri umsókn þar sem gerð er nánari grein fyrir fyrirhugaðri notkun. Afstöðumynd af Gerði, Suðursveit, þar sem gert er ráð fyrir svefnskála úr timbri sunnan við núverandi húsnæði.Teikning gerð af Sveini Ívarssyni, dags. 2. maí 2002. Ekkert formlegt erindi fylgdi teikningum. Samþykkt að leyfa staðsetninguna til bráðabirgðar til eins árs. Bent er á að gera þarf deiliskipulag af svæðinu eigi þetta að vera til lengri tíma.
Erindi frá Sigrúnu Ellen Einarsdóttir dags. 9. maí s.l. þar sem óskað er eftir að Garðsbrún 3 verði skipt í tvær íbúðir. Ekki gerðar athugasemdir við erindið, en áður þurfa að liggja fyrir fullnægjandi teikningar af innra skipulagi sem uppfylla gildandi reglugerðir.
Erindi frá bæjarráði þar sem Ragnar F Kristjánsson, óskar eftir að setja upp skilti á húsvegg Hafnarbrautar 25 og einnig við gatnamót þjóðvegar nr 1, Djúpavogsvegar, stærð skilta 350 x 150 sm. Ekki eru gerðar athugasemdir við skilti við þjóðveg nr. 1 svo framarlega sem það rýri ekki umferðaröryggi um gatnamótin. Hvað varðar skiltið við Hafnarbraut 25 þá vill nefdin að skoðaðir verði betur möguleikar á sameiginlegu skilti fyrir starfsemi á svæðinu samskonar og skilti við Kaffihornið ( sjá lið 2 hér á undan ).
Lagt var fram bréf frá Sigrúnu Sigurgeirsdóttir, dags. 5. maí s.l., þar sem afturkölluð er beiðni vegna fyrirhugaðs deiliskipulags við Fagurhólmsmýri. Til kynningar
2. Aðalskipulag Sveitarfél. Hornafj.
Endurskoðun Framhald frá síðasta fundi. Farið verður yfir tillögur, vegna endurskoðunar aðalskipulagsins fyrir 1998-1018. Borist hafa hugmyndir frá Vegagerðinni vegna nýrra vegstæða í Öræfum, Nesjum og í Lóni og hugsanlegar staðsetningar á námum í tengslum við þær. Einnig hefur verið rætt um lokanir á þeim námum sem möguleiki er á, en það er sameiginlegt hagsmunamál beggja aðila. Ekki er ástæða til að breyta vegstæðum núverandi tillögu nema við Skógey, vegurinn verði færður suðurfyrir, en námur yrðu skoðaðar betur m.t.t. nákvæmari staðsetningar, efnismagns o.fl. Farið var yfir þær óskir sem þegar höfðu komið fram s.s. frístundabyggð á Skálafelli, Haukafelli og Brekku, einnig skógrækt á Lindarbakka og á Skógeyjarsvæðinu og einnig nýtt stæði fyrir kirkjugarð á Höfn. Nefndarmenn sammála um að færa þessar tillögur inn á aðalskipulagsuppdráttinn. Önnur atrið sem rætt var um að skoða þyrfti betur voru t.d. breytingar á möguleikum á skógrækt á landbúnaðarsvæðum almennt eða á einstaka svæðum eins og t.d. Skógey. Samþykkt var að fara betur yfir flokka 3.5 og 3.6 á næsta fundi.
Fundi slitið 19:50


