Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 43
43. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 9. apríl 2003, kl. 11:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru:
Ólafur Sigurðsson formaður, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Torfi Friðfinnsson, Sívar Árni Scheving, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Endurbygging smurstöðvarhúss Olís við Hafnarbraut 45
Erindi frá Olís skv. bréfi dags. 9 apríl, undirritað af Hafsteini Guðmundssyni forstöðumanni framkvæmdadeildar, um leyfi fyrir endurbyggingu á bensínstöð Olís við Hafnarbraut. Ekki er um endanlegar teikningar að ræða ( gerðar af Arnari Sigurðssyni ). Gert er ráð fyrir að núverandi húsbygging hækki um 70 - 80 sm. Hæð við útvegg er sýnd 548 sm. Viðbygging verði rifin.
Rætt var um þörf á grenndarkynningu vegna erindisins og samþykkti meirihluti nefndarinnar að svo væri ekki. Einn vildi grenndarkynningu.
Nefndin heimilar frekari hönnun til endanlegrar afgreiðslu.
2. Viðbygging við fjós Svínafelli 1, Austurbær
Kynnt var teikning dags. 25. mars s.l. gerð af Fjölhönnun af hlöðu við núverandi fjós Svínafells 1, Austurbæ.
Nefndin samþykkir teikninguna
Ólafur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
3. Hlíðartún 21, klæðning utanhúss
Kynnt var teikning af húsinu við Hlíðartún 21, gerð af Kristni Ragnarssyni, dags. 12. mars s.l. þar sem gert er ráð fyrir að klæða húsið að utan með báraðri álklæðningu.
Nefndin samþykkir teikninguna
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.45
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Torfi Friðfinnsson Steinþór Hafsteinsson
Sívar Árni Scheving Helgi Már Pálsson
Aðalsteinn Aðalsteinsson


