Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 63
63. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 9. nóvember, 2005, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar. Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Haukur Sveinbjörnsson Einnig Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði.
1. Hótel Höfn, utanhússklæðning og gluggaskipti
Sótt er, í bréfi dags. 7. okt. 2005, um leyfi til að klæða Hótel Höfn að utan með keramik- og álklæðningu og einnig að skipta út gluggum hótelsins, samkv. teikn. Dr. Magga Jóns og Línuhönnunar, verk nr. 114 teikn. 01. Umsækjandi er Óðinn Eymundsson, f.h. Hótels Hafnar
Bent var á að opnanleg fög uppfylla væntanlega ekki ákvæði um breidd björgunaropa og skoða þarf það betur áður en endanlegt samþykki verður leyft. Ekki eru gerðar athugasemdir við gerð og útlit klæðningarinnar.
2. Fjárhús á Ægissíðu, utan skipulags
Umsókn um tímabundna notkun Sótt er, í bréfi dags. 21. október 2005, um leyfi til að hafa fé (24 kindur) í húsi á Ægissíðu á komandi vetri ( um er að ræða hús, sem er utan skipulags og stefnt er að, að verði fjarlægt ). Umsækjendur eru Þórhallur Steinsson, Sandbakkavegi 6 og Steinn Þórhallsson, Sandbakkavegi 2
Erindið samþykkt. Því er beint til bæjarráðs að húsið verði síðan rifið fyrir 1. júlí, 2006.
3. Júllatún 1, Skjólveggur o.fl. Afrakstur grenndarkynningar
Kynnt verða gögn varðandi grenndarkynningu vegna umsóknar um skjólvegg o.fl. á þaki bílskúrs. Ein skrifleg mótmæli hafa borist nefndinni þar sem talið er að ?þessar viðbætur séu algjörlega á skjön við hin húsin og bílskúrana við Júllatún ( oddatölumegin ).? Engvir aðilar, sem grenndarkynningin var send til, lýstu yfir samþykki sínu, en einn íbúi lýsti yfir andstöðu, munnlega við byggingarfulltrúa. Samþykkt var að hafna umsókn um skjólvegg o.fl. á þaki bílskúrs.
4. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
A. 12.09.2005. Fallist á breytingar á hlöðu og kertöflugeymslu í Akurnesi, skv. umsókn Ragnars Jónssonar, dags. 12.09.2005. Engar athugasemdir.
B. 31.10.2005. Fallist á niðurrif tveggja eldsneytisgeyma á lóð nr. 23, við Krosseyjarveg, skv. umsókn Olíudreifingar dags. 27.09.2005. Engar athugasemdir.
5 . Önnur mál.
Olís óskar eftir leyfi til næsta sumar, fyrir 2.000 lítra tank, fyrir litaða olíu. Staðsetning er við suðurenda núverandi bensínafgreiðslu við Hafnarbraut. Kynnt var umsögn frá eldvarnareftirlitsmanni þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Erindið samþykkt, en ýtrekað að bætt verði úr frágangi við tankinn. Haukur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Kynnt var óformlegt erindi frá Stefáni Helgasyni, Setbergi þar sem hann óskar eftir að byggja fjárhús, viðbyggingu. Meðfylgjandi er teikning frá Pétri Vilbergssyni, Strendingi ehf.
Engar athugasemdir. Byggingarfulltrúa falið að ganga frá erindinu þegar fullnaðarteikningar hafa borist.
Fundi slitið 18:20


