Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 71
71. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, mánudaginn 6. nóvember, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson og Miralem Haseta.
Einnig Hákon Valdimarsson, Össur Imsland, tækni- og umhverfissviði og Steinþór Hafsteinsson
Í upphafi fundar mættu Lars J. Andrésson og Hólmar Kristmundsson og kynntu nefndinni þeirra hugmyndir um framtíð Pylsubarsins. Þeir óskuðu eftir hentugri framtíðarlóð helst miðsvæðis til m.a að ná til ferðamanns á svæðinu. Jafnframt að þeir hefðu fullan hug á að gera umhverfi og aðkomu að pylsubarnum huggulegt og aðlaðandi.
1. Hringvegur um Hornafjarðarfljót. Tillaga að matsáætlun
Óskað er umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar um tillöguna.
Nefndin vill leggja áherslu á að stærð brúa séu þannig þær þrengi ekki vatnsföll eða hafi með öðrum hætti áhrif á vatnshæð grunnvatns innan brúa og verði frekar hannaðar í yfir en undristærð. Ástæða þessa er að hækkun grunnvatns mun hafa neikvæð áhrif á þann atvinnurekstur sem er innan fyrirhugaðrar veglína 2 og 3.
2. Hafnarbraut 2, endurbætur ,,Kaupfélagshússins,,
Óskað er, í bréfi dags. 25. okt. 2006, samþykkis nefndarinnar á fyrirhuguðum endurbótum á ,,Kaupfélagshúsinu,, Hafnarbraut 2.
Gert er m.a. ráð fyrir að endurbyggja húsið að utanverðu, byggja nýtt anddyri og fjarlægja bílgeymslu.
Umsækjandi er Hermann Hansson, f.h. Kaupfélagshússins ehf.
Nefndin fagnar fyrirhuguðu framtaki um endurbætur á ,,Kaupfélagshúsinu,, Hafnarbraut 2 og samþykkir ofangreinda umsókn.
3. Framtíðarlóð fyrir pylsubarinn
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 31. okt. 2006, til nefndarinnar, erindi Lars J.Andréssonar og Hólmars Kristmundssonar, dags. 22. október, 2006, þar sem þeir óska eftir framtíðarlóð fyrir pylsubarinn, á svæðinu milli Fiskhóls og tjaldsvæðis, ofan við matjurtagarðana (skólagarða) með aðkomu frá Hafnarbraut. Annars, að fundin verði önnur lóð fyrir starfsemina.
Nefndin hafnar umsókn um framtíðarlóð fyrir pylsubarinn, á svæðinu milli Fiskhóls og tjaldsvæðis þar sem sú staðsetning ógnar umferðaöryggi um aðalgötu bæjarins og yrði kostnaðarsamt að tryggja örugga aðkomu að svæðinu. Nefndin bendir umsækjendum á að sækja um lóð við Hafnarbraut 4 eða óska eftir samningi til fimm ára um núverandi staðsetningu.
4. Auglýsingar á austurvegg íþróttahúss Heppuskóla
Sótt er, í bréfi dags. 16. október, 2006, um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti á austurvegg íþróttahússins við Heppuskóla. Um er að ræða auglýsingar til tekjuöflunar fyrir Knattspyrnudeild Sindra
Umsækjandi er Valdemar Einarsson, f.h. Knattspyrnudeildar Sindra
Nefndin samþykkir umsóknina. Nánari útfærslur skulu unnar í samráði við húseiganda.
5. Nýtt kirkjugarðsstæði við Sílavíkurhól
Sóknarnefnd Hafnarsóknar óskar, í bréfi dags. 19. október, 2006, eftir samráðsfundi með nefndinni um gerð og skipulagningu nýs kirkjugarðs sem fyrst.
Erindið undirritað af Þorvaldi J. Viktorssyni, formanni sóknarnefndar.
Nefndin hefur þegar samþykkt staðsetningu garðsins og sér ekkert til fyrirstöðu að unnið verði frekar að nánari skipulagningu og útfærslum. Nefndin hvetur sóknarnefnd til að fara í viðræður við bæjaryfirvöld um næstu skref.
6. Önnur mál.
Björn Ingi minntist á hraðakstur innan þéttbýlis sem er mikið vandamál og leggur til að settar verði þrengingar til að spyrna við hraðakstri. Nefndin leggur til að haldin verði vinnufundur um umferðamál með lögreglu og vegagerð. Starfsmanni falið að boða til fundar með þessum aðilum innan skamms.
Kynntar voru fyrirhugaðar breytingar á gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018. Breytingin felst í því, að sett er inn svæði fyrir efnistöku vestan við Falljökulskvísl, í landi Sandfells í Öræfum fyrir allt að 50.000 m3. Svæðið er um 3,5 km. norðaustan þjóðvegar nr. 1.
Nefndin gerir ekki athugasamdir við fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulaginu.
Kynnt var bréf þeirra Elvars Unnsteinssonar og Hauks Þ. Sveinbjörnssonar þar sem þeir óska eftir umsögn Bæjarráðs um aðstöðu fyrir ferðaþjónustu við Óslands og Melabryggju og land bæjarins á Suðurfjörum. Um er að ræða bátsferðir á fjarðarbátum og fjórhjólaferðir á Suðurfjörum. Starfsmenn kynntu nefndinni viðræður við þá félaga um fyrirhugaðar áætlanir þeirra.
Nefndin sér ekkert þessu til fyrirstöðu svo fremi að tilskilin leyfi séu fengin, þar sem um friðlýst svæði er að ræða.
Fundi slitið 19:15


