Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 73
73. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 10. janúar, 2007, kl. 18:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Torfi Friðfinnsson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig Hákon Valdimarsson og Steinþór Hafsteinsson Jón Garðar Bjarnason frá lögreglunni.
1. Umferðamál
Rætt var um götur og vegi innan bæjarmarkanna þar sem hugsanlegur hraðakstur á sér stað.
Einnig almennar umræður hámarkshraða innanbæjar. Byggingar ? og skipulagsnefnd Hornafjarðar beinir því til bæjarstjórnar Hornafjarðar að hámarkhraði innanbæjar verði annað hvort 30 km. á klukkustund eða 50 km. á klukkustund þar sem það á við. Starfsmönnum falið að vinna að endanlegri útfærslu.
Jón Garðar gerði grein fyrir nokkrum atriðum sem hann telur að geti orðið til þess að bæta umferðina innanbæjar. Hann lagði sérstaka áherslu á það að lögð yrði hjáleið fram hjá Heppuskóla til þess að minnka umferð fram hjá skólahúsnæði og íþróttamannvirkjum og auka þannig öryggi barna sem þar eiga leið um.
Torfi spurði Jón Garðar um þjónustu Neyðarlínunnar og lýsti yfir óánægju sinni með þjónustu Neyðarlínunnar þegar kemur að útköllum á Hornafirði. Jón Garðar svaraði fyrirspurninni.
(Jón Garðar vék af fundi eftir þennan lið.)
2. Lóðamál, framhaldsumræða
Framhaldsumræða frá síðasta fundi nefndarinnar (13.12.2006) um lóðamál
Árni gerði grein fyrir því að leitað hefði verið til landslagsarkitekts til þess að gera tillögur að nýjum íbúðarsvæðum og tillögur að breytingum á núverandi skipulagi á Leirusvæði.
Byggingar ? og skipulagsnefnd fagnar því að vinna við lóðamál sé hafin. Nefndin leggur áherslu á það að stórar einbýlishúsalóðir verði hafðar að leiðarljósi í allri skipulagsvinnu.
3. Haukafell, frístundabyggð
Bæjarráð vísar á fundi sínum 29. des. s.l. til byggingar ? og skipulagsnefndar deiliskipulagstillögu að frístundabyggð í landi Haukafells á Mýrum.
Hákon gerði grein fyrir deiliskipulagstillögunni. Nefndin gerir engar athugasemdir við tillöguna og vísar henni bæjarstjórnar til afgreiðslu.
4. Aðalskipulagsbreyting v/ Víkurbrautar 11 - 13
Kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998 ? 2018
Hákon gerði grein fyrir aðalskipulagsbreytingunni. Steinþór greindi frá því að við skipulagsbreytinguna breytast eldvarnarkröfur til húsnæðisins. Annars gerir nefndin engar athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna.
5. Hringvegur um Hornafjarðarfljót
Gögn frá Skipulagsstofnun varðandi hringveginn um Hornafjarðarfljót dags. 5. des. 2006.
Til kynningar.
6. Afgreiðsla smærri mála sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
Engin mál.
7. Önnur mál
Hákon gerði grein fyrir tveimur tillögum að lóð fyrir húsnæði Íslandspósts sem starfsmenn tækni ? og umhverfissviðs hafa unnið. Nefndin felur starfsmönnum að vinna að frekari útfærslu á tillögu nr. 1 í samræmi við umræður á fundinum og kynna hana fyrir Íslandspósti.
Árni spurðist fyrir um skipulagsvinnu í tengslum við nýtt kirkjugarðsstæði. Hákon svaraði fyrirspurninni.
Árni greindi frá því að Haukur Ingi Einarsson, nýr framkvæmdastjóri tækni ? og umhverfissviðs, hefji störf um næstu mánaðamót. Einnig greindi hann frá samningum við Verkfræðistofu ehf. sem mun annast tæknimál sveitarfélagsins.
Hákon gerði grein fyrir auglýsingu á aðalskipulagsbreytingu í tengslum við efnistöku við Falljökulskvísl. Frestur til gera athugasemdir rennur út á morgun. Engar athugasemdir hafa borist.
Hákon gerði grein fyrir fyrirspurn frá Vegargerðinni í tengslum við ræsisgerð við Smyrlabjargará um það hvar reiðstígur skuli liggja. Starfsmanni falið að leita upplýsinga hjá hagsmunaaðilum og afgreiða málið í samræmi við umræður á fundinum.
Fundi slitið 20:20


