Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 82
82. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar í ráðhúsi,fimmtudaginn 18. október 2007 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, byggingarfulltrúi
1. 200710043 - Ósk um uppsetningu fjarskiptamasturs í þjóðgarðinum í Skaftafelli
Samþykkt samhljóða.
2. 200709084 - Byggingarleyfisumsókn fyrir salerni við Fláajökul í landi Hólms.
Nefndin samþykkti niðursetningu salernishússins fyrir sitt leyti en óskar eftir umsögn heilbrigðiseftirlitsins.
3. 200709061 - Lönd í eigu sveitafélagsins
Töluverðar umræður sköpuðust um málið, byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarráð taki málið til meðferðar.
4. 200709059 - Endurskoðun á Aðalskipulagi
Miklar umræður sköpuðust um endurskoðun á aðalskipulagi, nefndin fjallaði um vegstyttingar í sveitafélaginu. Ennfremur fjallaði nefndin um fyrirhugaða staðsetningu á nýjum kirkjugarði og heildar skipulag á Ægisíðu og nágrenni.
Byggingar- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að leita til ráðgjafa vegna endurskipulags á Ægisíðu og nágrennis. Nefndin leggur áhersla á að uppfærsla fari fram á núgildandi kortagrunni fyrir aðalskipulag sveitafélagsins.
5. 200706033 - Umsókn um byggingarleyfi v. Vesturbrautar 1
Samþykkt samhljóða. Nefndin leggur áherslu á að gerð verði grein fyrir gasgeymslu á lóðinni.
6. 200710044 - Breytingar á Vesturbraut 3
Afgreiðslu frestað þar til grenndarkynning á væntanlegri starfsemi hefur farið fram, vegna aukinnar umferðar að næturlagi sem fylgir starfsemi Póstsins.
7. 200710045 - Niðursetning GSM masturs í Öræfum
Samþykkt samhljóða.
8. 200710055 - Ósk um leyfi til að klæða og skipta um glugga í húseigninni Bogaslóð 6
Samþykkt samhljóða.
Önnur mál
Rætt um einstefnuakstur milli Pakkhús og hafnarvogar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20


