Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 87
87. fundur
87. fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 18. janúar 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Jón Stefán Friðriksson.
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
1. 200801019 - Byggingarleyfisumsókn
Sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi í Sighvatslundi í Lóni, skv. teikn. Vali Sveinssyni, bygg.fr.( TeikniHorn ehf) Verknr. Lón.SvS.0702. dags.13.10.2007. Umsækjandi er Sveinn Sighvatsson
Umsókn samþykkt með þeim fyrirvara að fullnægjandi teikningum verði skilað inn.
2. 200801006 - Byggingarleyfisumsókn
Sótt er um byggingarleyfi fyrir vélageymslu úr stáli og yleiningum í Bjarnanesi (við gamla Ás)skv. teikn. frá Vali Sveinssyni, bygg.fr. Verknr.( ) dags.12.12.2007. Umsækjandi er Vilborg Jónsdóttir, Bjarnanesi
Umsókn samþykkt með þeim fyrirvara að fullnægjandi teikningum verði skilað inn.
3. 200801013 - Lóðarumsókn - geymslulóð
Sótt er um lóð nr. 13, við Ófeigstanga, sem geymslulóð fyrir áburð og fóður. Umsækjandi er Bjarni Hákonarson, Dilksnesi. Óskað er umsagnar um lóðarumsóknina, Lóðin er skipulögð sem byggingarlóð, og yrði því hugsanleg úthlutun háð því, að umsækjandi yrði að rýma hana, komi til umsóknar um byggingu á henni.
Nefndin mælir með úthlutun lóðarinnar að því gefnu að frágangur lóðarinnar verði viðunandi. Nefndin bendir einnig á að lóðin er skipulögð sem byggingarlóð, og verður því úthlutun hennar háð því, að komi til umsóknar um byggingu á henni seinna, þá yrði umsækjandi að rýma lóðina.
4. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Lónsheiðargöng. Kynntar tillögur Vegagerðarinnar um legu fyrirhugaðra Lónsheiðarganga
Nefndin felur starfmanni að halda áfram vinnu við aðalskipulagsbreytingu vegna Lónsheiðarganga í samræmi við framlagðar tillögur Vegagerðarinnar. Nefndin hvetur til þess að haft verði samráð við Djúpavogshrepp vegna þessa máls.
Árni lagði til að haldinn verði vinnufundur vegna endurskoðunar á aðalskipulagi í febrúar með ráðgjöfum. Tillagan samþykkt.
Byggingar – og skipulagsnefnd samþykkir einnig að taka þátt í fyrirhuguðum fundum Umhverfisnefndar í dreifbýli þar sem skipulagsmál verða til umfjöllunar samhliða umhverfismálum.
5. 200712024 - Námur, framkvæmdaleyfi og mat á umhverfisáhrifum
Kynnt bréf Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar um ,,Námur, framkvæmdaleyfi og mat á umhverfisáhrifum,, dags. 7. des. 2007.
Til kynningar.
6. 200801024 - Nýr kirkjugarður
Kirkjugarðsstæði. Kynnt minnisblað Hauks I.E. um samanburð fjögurra hugmynda um kirkjugarðsstæði.
Nefndin er sammála því að valið um nýtt kirkjugarðsstæði standi á milli stæðis undir Réttarklettum til austurs annars vegar og undir Syðri - Sílavíkurhól til vesturs hins vegar. Starfmönnum falið að kynna sóknarnefnd þessar staðsetningar og óska eftir áliti hennar á staðsetningunum.
7. Önnur mál
Árni greindi frá því að Skipulagsstofnun væri búin að fara yfir frummatsskýrslu Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðs vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Skýrsla Vegargerðarinnar fer því fljótlega í formlegt umsagnar – og auglýsingarferli. Einnig greindi Árni frá því að stefnt er að opnum kynningarfundi um málið snemma í febrúar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15


