Umhverfis- og skipulagsnefnd

Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91

91. fundur

Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 14. maí 2008 og hófst hann kl. 17:00

 Fundinn sátu:

Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,

 

Fundargerð ritaði:  Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs

 

1.      200804128 - Byggingarleyfisumsókn Garðávaxtageymsla

Sótt er um leyfi til að byggja garðávaxtageymslu á Seljavöllum 2, Nesjum skv. teikn. frá Vigni Jónssyni, byggingartæknifr. dags. 26.11.2007. Verknr. 029 Byggingarefni er steinsteypa. Umsækjandi er Ásgeir Núpan Ágústsson, Seljavöllum 2.

Umsóknin er samþykkt, en lögð er áhersla á að umsækjandi fari að settum reglum og ábendingum heilbrigðiseftirlits um innri frágang hússins og aðstöðu, sbr. viðmiðunarreglur um Meðferð og dreifingu garðávaxta.

2.      200804082 - Byggingarleyfi f. gestahúsum við Vagnstaði

Sótt er um leyfi til að setja niður 5 gestahús við Vagnsstaði í Suðursveit, skv. teikn. frá Vali Sveinssyni bygg.fr. dags. 1. apríl, 2008. Um er að ræða hús Náttbóls ehf, sem standa á lóð nr. 48a við Hafnarbraut, en til stendur að flytja þaðan, sbr. afgreiðslu á 90. fundi nefndarinnar, 9. apríl, 2008.
Umsækjandi er Bjarni Sk. Bjarnason, Vagnsstöðum

Nefndin fellst á erindið, en óskar eftir því að gert verði deiliskipulag af umræddu svæði, þar sem fram kemur umfang starfseminnar á Vagnsstöðum.

3.      200802023 - Knattspyrnuhús

Fyrir liggur deiliskipulagstillaga að svæði fyrir knattspyrnuhús undir Garðshóli, KNATTLEIKJAHÚS VIÐ VÍKURBRAUT Á HÖFN, til kynningar og umsagnar. Tillagan er gerð af Glámu-Kím Arkitektum Laugavegi 164. Bæjarstjórn samþ. hinn 5. maí, s.l. að auglýsa tillöguna. Haukur gerði grein fyrir gögnum dagsettum 15.05.2008 er varðar minniháttar breytingar á tillögunni sem lögð var fyrir bæjarstjórn er varðar staðsetningu á byggingarreit fyrir þjónustubyggingu, bílastæði, gönguleið ásamt leiðréttingu á skýringum uppdráttar.

Í tillögunni kemur meðal annars fram,

Deiliskipulagsreiturinn afmarkast af Víkurbraut til austurs, brekkufæti Garðshóls (húsa við Bogaslóð og Garðsbrún) til vesturs, íþróttavelli til norðurs, og lóðamörkum „Lönguvitleysu“ við Víkurbraut og Víkurbrautar 5 til suðurs. Skipulagssvæðið er hluti af malarfyllingu á leirum austan Garðshóls. Í gildandi aðalskipulagi er þar svæði fyrir þjónustustofnanir og miðsvæði, og óbyggt svæði á rönd í brekkufætinum. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið, en á því standa þrjú hús, verkstæði, geymsluhús, og skrifstofur:
? Víkurbraut 7 landnúmer 160031, sem skiptist í vörugeymslu frá 1964, stærð 200m2 og vörugeymslu / skrifstofu frá 1983, stærð 227,1m2.
? Trésmíðaverkstæði við Víkurbraut (Leifshús), landnúmer 160035, byggingarár 1962, stærð 142,5m2.
Heimilað er að rífa eldra vörugeymslu-húsið, og rífa trésmíðaverkstæðið eða fjarlægja og
flytja á aðra lóð.
Umhverfis skipulagssvæðið eru skólalóðir, íþróttavöllur, íbúðarsvæði vestan og norðan við, geymsluskemma („Langavitleysa“) sunnan við, og verkstæði, verslunar- og þjónustuhús austan við, meðfram Víkurbraut.
Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina lóð og byggingarreit fyrir knattleikjahús og
tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn. Lóðin liggur vel við skóla- og íþróttamannvirkjum og verður auðsótt skólabörnum.

Skilgreind er ný lóð fyrir Knattleikjahús, 8900m2, þar sem heimilað er að reisa eftirtaldar
byggingar:
A: Knattleikjahús á einni hæð að hámarki 4000m2. Hámarkshæð er gefin í kennisniði og miðast hún við gólfkóta aðalhæðar sem gefinn er á mæliblaði – hæð langveggja skal ekki meiri en 7,5m og mænishæð skal ekki hærri en 12m. Í stað knatthúss er heimilt að reisa svokallað dúkhús / tjald, þ.e. burðarvirki með ástrengdum dúk, svo lengi sem öllum skilyrðum um fullnægjandi brunavarnir, fjarlægðir milli húsa, aðkomu slökkviliðs o. fl. er fullnægt og húsið/ tjaldið fær úttekt byggingaryfirvalda.
B: Þjónustubyggingu fyrir knatthús sem inniheldur, salerni, miðasölu, veitingasölu, kaffistofu starfsfólks o. fl. Hámarksstærð byggingarinnar er 300m2 og hámarkshæð er gefin í kennisniði og miðast hún við gólfkóta aðalhæðar sem gefinn er á mæliblaði – hæð langveggja skal ekki meiri en 3,5m og mænishæð skal ekki hærri en 5m.
Nýtingarhlutfall nýrrar lóðar er 0,46.
Byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við framkomnar breytingar að deiliskipulagstillögu og mælir með því, að tillagan verði auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Árni Rúnar Þorvaldsson lagði áherslu á að samfara almennri auglýsingu færi fram grenndarkynning. Tillaga samþykkt

4.      200804049 - Skipulagsdagurinn 2008
Árni Rúnar Þorvaldsson og Haukur Ingi gerðu grein fyrir fundinum, þar sem meðal annars var fjallað um Landskipulag og áhættumat í aðalskipulagi o.fl.

5.      200805016 - Drög að reglugerð
Byggingar og skipulagsnefnd gerir athugasemd við 30. gr. og bendir á að ekki er gert ráð fyrir aðkomu byggingar- og skipulagsnefndar viðkomandi sveitarfélags í greininni. Nefndin óskar eftir því að fá gögn um mörk Vatnajökulsþjóðgarðs til að geta tekið endanlega afstöðu til reglugerðarinnar.

6.      200805022 - Umsókn um breytta starfsemi í húsnæði Nesjaskóla

Sótt er um leyfi til að breyta notkun núverandi heimavistar Nesjaskóla í gistiheimili og Sunnuhvolshúsinu í íbúðarhús (eins og það var upphaflega) Teikningar af gistiheimilinu, með breytingum, eru í vinnslu og verða lagðar fram fljótlega. Umsækjandi er Hótel Jökull ehf.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið

7.      200805021 - Byggingarleyfisumsókn v. viðbyggingar

Sótt er um leyfi til að byggja garðskála/sólskála á Hafnarbraut 22, milli íbúðarhúss og geymsluhúss, skv. teikn. frá Verkfræðiþjónustunni ehf gerðum af Svavari Sigurjónssyni, tæknifr. Verknr. 08.28 Dags. 03.05.2008. Umsækjandi er Ingibjörg Zophoníasdóttir, Hafnarbraut 22
Nefndin samþykkir umsóknina án athugasemda.

8.      200804017F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
Sótt er um leyfi til að skipta út gluggum á Hrísbraut 9, og breyta útliti þeirra um leið skv. framlögðum teikn. Einnig er sótt um leyfi til að setja upp 4,0 ferm. anddyri framan við forstofuna. Hvort tveggja, anddyrið og gluggar verða úr PVC plasti. Umsækjendur eru Kristján Friðriksson og Lovísa B. Kristjánsdóttir
Umsóknin er samþykkt.

Sótt er um leyfi til að breyta (skipta út)gluggum á íbúðarhúsinu að Hlíðartúni 10, samkv. framlögðum skýringargögnum. Breytingin felst í því, að rammar fyrir fög eru breikkaðir og skipt með láréttum pósti með opnanlegu fagi í neðri ramma. Um verður að ræða plastglugga.
Umsóknin er samþykkt.
Beðist er velvirðingar á því, hve dregist hefur að svara erindinu.

9.      200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi

Árni greindi frá vinnufundi með arkitektum og ráðgjöfum frá Gláma-Kím varðandi endurskoðun aðalskipulags laugardaginn 26. apríl 2008 kl. 09.00 - 14.00.
Ráðgjöfum og starfsmönnum falið að koma með tillögur að verkferli og skilgreina helstu viðfangsefnin við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18:30

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
10.01.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 20
06.12.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar  19
02.11.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18
05.10.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 17
07.09.2011 Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar 16
12.08.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 15
01.06.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar14. fundar
04.05.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 13
06.04.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 12
14.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 11
02.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 10
18.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 9
02.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 8
12.01.2011 Fundur umhverfis- og skipulagsnefndar 7
12.01.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 7
01.12.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6
03.11.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 5
28.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 4
01.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3
19.08.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 2
23.06.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1
21.04.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 124
24.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 123
10.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 122
10.02.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 120
26.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 119
14.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 118
17.12.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 117
11.11.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 116
14.10.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 115
10.09.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 113
12.08.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 112
10.06.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 111
14.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 110
06.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 109
29.04.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 108
18.03.2009 Fundargerð  byggingar- og skipulagsnefndar 107
25.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 106
11.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 105
04.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 104
14.01.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 103
18.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 102
15.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 101
10.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 100
19.11.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 99
08.10.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 98
25.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 97
24.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 96
10.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 95
13.08.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 94
17.07.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 93
11.06.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 92
14.05.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91
09.04.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 90
27.03.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 89
19.02.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 88
17.01.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 87
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
12.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 85
29.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 84
14.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 83
18.10.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 82
27.09.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 81
08.08.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 80
04.07.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79
27.06.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 78
09.05.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 77
11.04.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 76
14.03.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 75
14.02.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 74
10.01.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 73
13.12.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 72
06.11.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 71
11.10.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 70
13.09.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 69
05.07.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 68
07.06.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 67
18.05.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 66
18.04.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 65
08.02.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 64
09.11.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 63
07.09.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 62
09.06.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 61
12.05.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 60
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
07.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsenfndar 58
10.03.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 57
11.11.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 56
21.10.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 55
22.07.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 54
09.06.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 53
05.04.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 52
11.03.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 51
12.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 50
02.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 49
11.12.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 48
09.10.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 47
01.09.2003 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.07.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 46
12.06.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 45
15.05.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 44
09.04.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 43
13.03.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 42
13.02.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 41
09.01.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.10.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 39
12.08.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 38
14.05.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 37
09.04.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 36
12.02.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 35
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica