Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 107
107. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 18. mars 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200903012 - Byggingarleyfi Ægissíða 42 Örn Eriksen
Sótt er um leyfi til að byggja gripahús (fjárhús) á lóð nr. 42 við Ægissíðu, skv. teikn. frá TeikniHorni ehf, gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfr. verknr.örn-hfn 0612, dags. 27.12.2008. Umsækjandi er Örn Eriksen. Hlíðartúni 2, Höfn.
Samþykkt samhljóða
2. 200902080 - Byggingarleyfisumsókn
Sótt er um leyfi til að byggja tækjaskemmu á Brunnhóli samkv. teikn. frá Kollgátu ehf. teiknistofu,dags. 27.01.2009, gerðum af Loga M. Einarssyni arkitekt. Húsið verður byggt upp af 4 gámum limtré og stálsamlokueiningum. Umsækjandi er Ingólfur Guðmundsson, f.h. Jóns kr. Jónssonar, Brunnhóli
Samþykkt samhljóða að því gefnu að öllum reglum byggingarreglugerðar verði uppfyllt.
3. 200902071 - Byggingarleyfisumsókn
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús úr timbri, í landi Reyðarár í Lóni, skv. teikningum Sigrúnar Svövu Ólafsdóttur, arkitekts, (teiknistofan SÓL)dags. 16.02.2009. Umsækjandi er Ingólfur Ásgrímsson, Hlíðartúni 19, Höfn
Samþykkt samhljóða.
4. 200808045 - Breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Sótt er um leyfi til að reisa tvær skólastofur á lóð Hafnarskóla við Svalbarð, ásamt tengibyggingu milli þeirra, samkv. teikn. frá Glámu-Kím arkit. Verknr. 0810057, dags. 22.01.2009. Um er að ræða færanlegar stofur frá Nesjaskóla. Umsækjandi er Stefán Ólafsson, framkv.stj.fræðslu- og félagssviðs.
Hákon kynnti ábendingar HAUST. Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir ábendingar HAUST.
Umsóknin samþykkt samhljóða að því gefnu að kröfum um byggingarreglugerð verði uppfyllt.
5. 200903011 - Byggingarleyfisumsókn Ægissíða 40 Gunnar Hermannsson
Sótt er um leyfi til að byggja gipahús (fjárhús) á lóð nr. 40. við Ægissíðu, skv. teikningu Össurar Imslands, byggingarfr. Verknr. HF-08-200, dags. 11.12.2008. Umsækjandi er Gunnar Hermannsson, Miðtúni 24, Höfn
Samþykkt samhljóða.
6. 200903006 - Umsókn um auglýsingaskilti
Sótt er um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti um 1x1m á stærð, annars vegar við gatnamót Víkurbrautar/Álaugarvegvegar við lóð Víkurbrautar 5, og hins vegar við gatnamót Álaugarvegar/Sæbrautar við lóð Flytjanda. Byggingarfulltrúi hefur þegar afgreitt erindið, þar sem að samþykkt er skilti við Flytjandalóðina, en hinni staðsetningunni er hafnað,en óskað er eftir því, að málið verði tekið fyrir í nefndinni. Umsækjandi er Kristján V. Björgvinsson f.h. Húsasmiðjunnar hf.
Byggingar- og skipulagsnefnd felur starfmönnum að vinna að lausn á málinu.
7. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Farið var yfir greinargerð og updrætti og samþykkt að vísa tillögum til starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi.
8. 200808045 - Breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Sótt er um leyfi til breytinga á Hafnarskóla, þ.e. í tveimur elstu byggingunum, skv. teikn. frá Glámu - Kím, arkit. Verknr. 0810057. dags. 13.03.2009.
Ákveðið að fresta afgreiðslu þar sem endanlegar teikningar hafa ekki borist.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


