Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 117
117. Fundur
Fundur íbyggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 17. desember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200912016 - Ósk um leyfi til endurbóta á Kirkjubraut 12
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum Kirkjubrautar 12, Höfn og koma þeim þar með í upphaflegt horf, svo og að einangra húsið að utan og múrhúða auk endurnýjunar á þaki og þakköntum. Umsækjendur eru Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Sigursteinn Haukur Reynisson, Kirkjubraut 12
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum í samræmi við umsókn.
2. 200912001 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja pökkunar- og vinnsluhús fyrir landbúnaðarafurðir á Miðskeri, skv. teikn. frá TeikniHorni ehf. gerðum af Vali Sveinssyni, dags. 18.10.2009. Verknr. MIÐ-SÆV-0901 Umsækjandi er Sævar Kristinn Jónsson, Miðskeri
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir uppbyggingu hússins í samræmi við teikningar unnar af Vali Sveinssyni, dags. 18.10.2009
3. 200912029 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að stækka íbúðarhúsið á Smárabraut 15, Höfn, á þann hátt, að útveggur innskots á norðurhlið verði færður út í sama flöt og norðurhlið hússins. Er einkum um að ræða stækkun anddyris og þvottahúss. Teikningar eru frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðar af Svavar M. Sigurjónssyni, byggingartæknifr. Verknr. 09-61. Dags.04.12.2009. Umsækjandi er Björgvin Ó. Sigurjónsson, f.h. húseigenda
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir stækkun íbúðarhússins í samræmi við teikningar unnar af Svavari M. Sigurjónssyni, dagsettum 04.12.2009
4. 200912034 - Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Óskað er álits nefndarinnar á fyrirhugaðri uppbyggingu ferðaþjónustu við Lambleiksstaði á Mýrum, og framkvæmdir í tengslum við hana. Fyrirspyrjandi er Kári Gunnarsson, f.h. landeigenda.
Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar erindi um uppbyggingu ferðaþjónustu við Lambleiksstaði. Áður en endanleg afstaða til málsins er tekin óskar nefndin eftir áliti ráðgjafa sveitarfélagsins í skipulagsmálum um fyrirhugaða landnotkun og staðsetningu.
5. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn.
Umsókn Vegagerðarinnar um uppsetningu hraðatakmarkandi aðgerða, barst í tölvupósti frá Sveini Sveinssyni Vegagerðinni, dagsett 9.12.2009.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir uppsetningu hraðahindrunar en nefndin er sammála um að um bráðabirgðalausn er að ræða. Nefndin telur að þarna verði hraðatakmarkandi aðgerð í formi miðmeyjar sbr. fyrsta kost Vegagarðarinnar. Einnig er nefndin sammála um að annarri innkeyrslu inn á plan íþróttasvæðis verði lokað. Nefndin leggur áherslu á að gætt verði að merkingum og lýsingu við uppsetningu hraðahindrunarinnar.
6. 200912050 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja iðnaðarhús í Hjarðarnesi (endurbyggja gamla Leifsverkstæðið á steyptum 1,5 m. háum sökkul)samkv. teikn. frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðum af Svavari M. Sigurjónssyni. Verknr. 09-68. Dags. 15.12.2009.Umsækjandi er Lovísa S. Eymundsdóttir, landeigandi Hjarðarness.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu iðnaðarhúss í Hjarðanesi samkvæmt teikningum gerðum af Svavari M. Sigurjónssyni dagsettum 15.12.2009 að því gefnu að landeigndur vinni deiliskipulag fyrir svæðið innan sex mánaða.


