Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 120
120. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 10. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201002007 - Þungatakmarkanir á hellulögðum svæðum á Hafnarbraut
Bæjarráð vísaði því til byggingar- og skipulagsnefndar, á fundi sínum 1. febr. 2010,að tillögu Halldóru B. Jónsdóttur, að nefndin fjallaði um hugsanlegar þungatakmarkanir á þeim svæðum Hafnarbrautarinnar, sem hafa verið hellulögð.
Umræður sköpuðust um mikilvægi þess að tryggja aðgengi að þeirri þjónustu sem veitt er við og í námunda við Hafnarbraut, svo sem póstþjónusta, verslun og jöklasafn.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og leggja gögn fyrir næsta fund nefndarinnar.
2. 200909035 - Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar, Vatsveita, hitaveita og þjóðvegur í þéttbýli
Lögð fram, til kynningar og umsagnar, að ósk Hauks Inga, drögum að Matslýsingu vegna Hitaveitu í Hoffelli og vatnsveitu í Grjótbrú.
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á drögum að matslýsingunni frá því fundargögn voru send út. Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugsemdir við drög að matslýsingunni og felur starfmanni að senda hana til yfirferðar Skipulagsstofnunnar.
3. 201002009 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 25a, í Stefafellsfjöllum. Með umsókn fylgir teikning (raunteikning) af húsinu, gerð af Össuri Imsland, verknr. 09107, dags. 12.01.2010, samkv. uppmælingu, en húsið hefur þegar verið reist. Byggingarefni er timbur. Umsækjandi er Rannveig Á. Gunnlaugsdóttir, Miðtúni 5, Höfn.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi í samræmi við teikningar unnuar af Össuri Imsland dags 12.01.2010.
4. 201001031 - Álit Samkeppniseftirlitsins um skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni
Bæjarráð vísaði, á fundi sínum, 11. jan. 2010, til byggingar- og skipulagsnefndar, Áliti Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2009, -Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni-, þar sem þeim tilmælum er beint til sveitarfélaga á Íslandi, að hafa tilteknar átta meginreglur til hliðsjónar við skipulag og úthlutun lóða.
Byggingar- og skipulagsnefnd hvetur til þess að álit Samkeppniseftirlitsins verði haft til hliðsjónar þegar kemur að skipulagi og úthlutun lóða í sveitarfélaginu.
5. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Tekin fyrir deiliskipulagstillaga fyrir mibæjarsvæði, við Hafnarbraut og nágrenni, gerð af Árna Kjartanssyni, arkit. Glámu-Kím.
Kynntar hugmyndir að deiliskipulagi. Starfsmönnum falið að skipulegggja vinnufund með ráðgjöfum um fyrirhugað deiliskipulag á miðbæjarsvæði.
6. 201002032 - Umsókn um lóð
Bæjarráð vísar, á fundi sínum, 1. febrúar, 2010, til byggingar- og skipulagsnefndar,umsókn Skeljungs hf, dags. 21.01.2010, um lóð nr. 38, við Hafnarbraut, undir bensínafgreiðslu og veitingar/verslun.
Kynnt var álit ráðgjafa á nýtingu lóðar sem bæjarráð óskaði eftir. Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar áhuga umsækjanda á að hefja atvinnustarfsemi á svæðinu en nefndin telur að lóð nr. 38 við Hafnarbraut henti ekki fyrir þá starfsemi sem sótt er um og hvetur til að leitað verði annarra lausna fyrir umsækjanda.


