Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 27
27. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 18. janúar 2006 í Ráðhúsi. Kl. 17:30 Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir, Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir og Kristín G Gestsdóttir.
1. Ósk um lán úr gjafasjóði til Hssa að upphæð 6.000.000.- kr.
Heilbrigðis og öldrunarráð óskar eftir því við gjafasjóð að hann láni til endurbóta á dvalarheimili að Víkurbraut 26 allt að kr. 6.000.000.- HSSA ætlar sér að borga upp lánið með söluandvirði á Hvannabraut 3 til 5 og einnig að sækja um til Framkvæmdasjóðs aldraðra. Stjórn Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs samþykkir að lána HSSA kr. 6.000.000.- en felur Elínu Magnúsdóttur og Marenu Sveinbjörnsdóttur að ganga endanlega frá samningum við HSSA í anda þeirrar umræðu sem var á fundinum.
2 Stjórn gjafa og minningarsjóðs
hefur ákveðið í ljósi þeirra breytinga sem er orðin á skipulagi Dvalarheimilisins og Dagvistar aldraðra að gefa eina þvottavél, tvær uppþvottavélar og einn þurrkara. Stjórnin leggur til allt að 400.000.- kr. verði úthlutað.


