Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
33. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 6. febrúar 2002, kl. 16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir, Heimir Þór Gíslason, Þorsteinn Sigfússon og Margrét Ingólfsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Baldur Thorstensen, Ester Þorvaldsdóttir, Björg Svavarsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir.
1. Stefnumótun Heilbrigðis- og öldrunarmála til 2010
Jóhann fór yfir helstu breytingar sem orðið hafa frá síðustu drögum stefnumótunarinnar. Heimir telur húsnæði Dvalarheimilis Skjólgarðs vera í viðunandi ástandi og gæta verði þess að halda húsunum vel við þótt stefnt verði að því að byggja yfir starfsemina í framtíðinni. Tilnefndir voru eftirfarandi einstaklingar frá pólitísku framboðunum til að yfirfara og endurskoða stefnumótunina nú :
Þorsteinn Sigfússon, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir.
2. Önnur mál
Engin.
fundi slitið kl. 16:45


