Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 95
95. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 17. september 2008 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Guðrún Ingimundardóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Pálrún Sigurðardóttir.
1. Fundargerð 94. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Drög að reglum um sí- og endurmenntun starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
(Stefán Ólafsson sat fundinn undir þessum lið). Stefán gerði grein fyrir málinu. Mikil umræða skapaðist og athugasemdir gerðar við einstaka liði sem vísað er til frekari vinnslu þessara reglna. Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að vinnu við setningu reglnanna verði hraðað.
3. Bréf frá sjúkraliðanemum
(Pálrún vék af fundi undir þessum lið). Lagt fram bréf dags. 28. ágúst 2008 vegna óskar um greiðslu launa í verknámi á sjúkraliðabraut. Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að allir starfsmenn sveitarfélagsins sitji við sama borð.
4. Starfsmannamál
Ásgerður og Ester gerðu grein fyrir starfsmannamálum.
5. Önnur mál
Björk spurði um heimasíðu, samstarfsvettvang við eldra borgara, upplýsingabæklingi fyrir eldri borgara og þjónustusamning um rekstur HSSA.
Hjalti svaraði fyrirspurnum.
Ester ræddi um Gjafasjóðinn og endurskoðun á úthlutunarreglum. Spurði hún hvort að sjóðurinn væri barns síns tíma og hvort ekki væri tímabært að skoða reglur hans frá grunni. Ræddi hún um hvort gjafasjóðurinn ætti að breytast í hollvinasamtök HSSA og rýmka úthlutunarreglur hans.
Ásgeir svaraði að von er á tillögum um breytingar á sjóðnum á næstu fundum HÖR.
Fundi slitið, kl. 17.40


