Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 45
45. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss fimmtudaginn 16. október 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Þorsteinn Sigfússon, Kristín G. Gestsdóttir og Maren Sveinbjörnsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Baldur Thorstenssen og Ágústa Baldursdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2003
Miðað við endurskoðaða fjárhagsáætlun er halli stofnunarinnar rúmar 22 milljónir kr. Vonir standa til að af þeirri upphæð verði hægt að sækja 14,2 milljónir til ríkisins. Eftir stendur þá halli upp á 8 milljónir kr.
Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir miklum áhyggjum af stöðunni. Ljóst er að leita þarf allra leiða til að ná fram sparnaði í rekstri stofnunarinnar á næsta ári.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir stofnunina og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
2. Félagsleg heimaþjónusta HSSA
Jóhann lagði fram drög að reglum um heimaþjónustu. Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir drögin. Ákvörðun um gjaldskrá fyrir þjónustuna verður tekin á næsta fundi.
3. Tímabókunarkerfið Bakvörður og vaktakerfið TimeCare
Lögð var fram áætlun frá framkvæmdaráði um hvernig ná megi fram sparnaði til að mæta kostnaði við innleiðingu kerfanna. Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir að kerfin verði keypt á næsta ári.
4. Önnur mál
Fram kom að framkvæmdir við gerð garðs við dvalarheimilið eru hafnar. Spurt var um viðbyggingu við hjúkrunarheimilið. Ráðuneytið hefur enn ekki tilnefnt fulltrúa í nefnd til undirbúnings framkvæmdanna.
fundi slitið kl. 17:55


