Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 111
111. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 20. maí 2010 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Guðlaug Björgvinsdóttir.
1. Fundargerð 110. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaða HSSA 30. apríl 2010
Guðrún Júlía fór yfir 4. mánaða rekstrarstöðu.
3. Starfsemi sumarsins og starfsmannamál
Ester og Ásgerður fóru yfir starfsemi sumarsins og hvernig gengi að ráða í sumarafleysingar.
Gengið hefur vel að mestu að ráða í sumarafleysingar og áætlað er að starfsemi HSSA verði með óbreyttu sniði í sumar.
4. Ábending frá Ríkisendurskoðun vegna þjónustusamnings um Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Lagt fram til kynningar.
5. Önnur mál
a) Guðlaug spurði hvað væri að frétta af skýlinu við Mjallhvít. Búið er að leggja fram drög að teikningu sem athugasemdir hafa verið gerðar við og er verkefnið í vinnslu hjá arkitekt. HÖR leggur áherslu á að málinu verði fylgt eftir.
b) Stjórn HÖR þakkar fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu og lýsa yfir ánægju sinni með góðan rekstur stofnunarinnar
Fundi slitið kl: 17.00


