Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
20. fundur
Fundur haldinn föstudaginn 23. apríl 2010 kl. 15.00 í Ráðhúsi Hornafjarðar. Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Skúli Skúlason. Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Helga Davids sérfræðingur og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir ráðgjafi.
Dagskrá.
1. Verndaráætlun Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs – tillögur ráðgjafa
Hjalti bauð fundarmenn velkomna. Sigurlaug spurði um samspil tillögur ráðgjafa fyrir suðursvæði og samræmdrar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð í heild sinni. Hjalti upplýsti að tillögur ráðgjafa á hverju rekstrarsvæði fyrir sig mynduðu grunn að samræmdri stjórnunar- og verndaráætlun. Tillögur ráðgjafa væri mun ítarlegri og yfirgripsmeiri en samræmda áætlunin drægi fram þá þætti sem mikilvægastir væru m.t.t. til uppbyggingar þjóðgarðsins og þjónustu.
Sigrún Inga, Regína og Helga kynntu þar næst tillögurnar. Á meðan kynningu stóð var farið yfir ýmiss atriði þar sem eftirfarandi kom fram:
- Björn Ingi vakti máls á umræðu í skýrslunni um sjálfbæra nýtingu, víðerni og umferð á Vatnajökli í samhengi við verndarlokk II hjá IUCN. Svæðisráð leggur ríka áherslu á að ef setja á verndarflokk II fyrir þjóðgarðinn að þá verði það ekki til að draga úr möguleika á ferðamennsku og sjálfbærri nýtingu (sauðfjárbeit og veiðar) í Hoffelli og Heinabergssvæði og að útivist og ferðamennska á jökulhettu Vatnajökuls geti verið með óbreyttu sniði og jafnvel aukist í framtíðinni.
- Regína gerði verndun náttúrulegs gróðurfars í Morsárdal að umtalsefni og sagði það sína skoðun að ekki ætti að beita úrræðum sem fælu í sér notkun eiturefna. Lagði frekar til að fleiri úrræði væru skoðuð. Um er að ræða meira en 30 ha lands. Svæðisráð fjallaði um málið og samþykkti að í skilmálum verði sett sú stefna að fá fagstofanir til samráðs um útrýmingu lúpínu á svæðinu.
- Guðrún Ingimundardóttir lagði til að hugtakinu ferðamannavegur yrði skipt út fyrir frístundaveg.
- Rætt um tjöldun á víðernum. Svæðisráð sammála um að almannaréttur eins og hann er skilgreindur í lögum eigi við um víðerni í þjóðgarðinum.
- Sigurlaug lagði áherslu á að nýjasta upplýsingatækni verði notuð við upplýsingagjöf í þjóðgarðinum og upplýsingar verði aðgengilegar sem víðast á þjónustustöðum í nágrenni garðsins.
- Umræða skapaðist um húsnæði fyrir heilsársstarfsmenn. Svæðisráð er sammála um að ekki ætti að setja markmið um að tryggja öllum heilsársstarfsmönnum húsnæði heldur meta aðstæður hverju sinni.
Eftir yfirferð og lagfæringar sem gerðar voru á fundinum voru tillögur ráðgjafa samþykktar. Svæðisráð vísar Verndaráætlun Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs til stjórnar.
Svæðisráð þakkar ráðgjöfum og starfsmönnum fyrir mikla og vandaða vinnu við gerð tillögu að verndaráætlun.
2. Önnur mál
- Skúli Skúlison spurði um fundargerðir á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs. Hjalti upplýsti að fundargerði svæðisráðs Suðursvæðis væru allar að finna á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/Nefndirograd/vatnajokull/.
Fundi slitið 17.30


