Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð Almannavarnanefndar 29

29. fundur

 

Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar .miðvikudaginn 5 .apríl  2006 kl 16.00 í Slysavarnarhúsinu á Höfn

 

Mætt voru :Páll Björnsson formaður, Steinþór Hafsteinsson, Helgi Már Pálsson,

Albert Eymundsson og Ragnhildur Magnúsdóttir.

 

1.      Rafmagn hjá HSSA

Rætt var um rafmagnsmál HSSA vegna  kaupa á vararafstöð og nefndin lagði

áherslu á þau mál komist í gott lag eins og bókað var á síðasta fundi.

Ragnhildur gerði athugunarsemd við tímasetningu fundarins sem rakst  á námskeið

vegna  flugslysaæfingarinnar sömuleiðis þann drátt sem orðið hefði á fundarboðun.

2.      Flugslysaæfing

Páll gerði grein fyrir flugslysaæfingunni. Fyrir 20 apríl þurfa athugasemdir að vera komnar við viðbragðsáætlun æfingarinnar. Rætt um fjarskipti og handstöðvar fyrir heilbrigðis starfsfólk . Formaðurinn ræðir við björgunarsveitina um þessi mál.

3.      Skipun aðgerðarstjórnar

Lögð fram tillaga um aðgerðarstjórn sé skipuð fulltrúum frá :

Lögreglu,Slökkviliði, HSSA,Tæknideild Sveitarfélagsins,Björgunarfélagi Hornafjarðar og Björgunarsveitinni Kára  sameiginlega og Hornafjarðardeild Rauðakross Íslands,

Hver þessara aðila skal gera tillögu til almannavarnarnefndar um einn mann í aðgerðarstjórn og einn varamann fyrir hvern aðalmann.

Ragnhildur gerði athugasemd við að fulltrúi lögreglunnar væri starfandi lögreglumaður þar sem þeir nýtast betur á vettvangi .

Nefndin telur eðlilegt að lykilmenn í samfélaginu sem nú sitja í almannavarnanefnd en eru ekki í aðgerðarstjórn starfi með aðgerðarstjórninni.

Formanni falið að rita þessum aðilum bréf og óska eftir tilnefningum.

 

 

Fundi slitið kl 17.20

 

 

 

     

 

 





 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica