Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 266
266. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss, fimmtudaginn 7. október 2004, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Fundur um Náttúrustofu Suðausturlands, 1. október 2004.
Halldóra kynnti umræður sem fóru fram á fundinum um hvernig vinna ætti að verkefninu. Bæjarráð óskar eftir því að starfshópur um Náttúrustofu Suðausturlands ljúki störfum 1. apríl 2005.
2. Forhönnunarskýrsla vegna fráveitumála
Helgi Már kynnti skýrsluna. Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til HAUST.
3. Framkvæmdir og framkvæmdaáætlun
Helgi Már dreifði og kynnti minnisblað um stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu og áætlun um framkvæmdir sem eru á döfinni. Bæjarráð felur Helga Má að vinna áfram eftir framkvæmdaáætlun í samræmi við umræður á fundinum.
4. Ósk um umsögn á endurútgáfu leyfis til reksturs gistiheimilis.
Bréf sýslumannsins á Höfn 29. september 2004.
Bæjarráð hefur engar athugasemdir varðandi erindið.
5. Endurskoðun á fjárhagsáætlun
Ásta kynnti endurskoðun á fjárhagsáætlun.
Ásta kynnti einnig gögn sem sýna þróun launakostnaðar í grunn- og leikskólum í sveitarfélaginu frá 1996-2003.
Halldóra spurði um vinnu að fjárhagsáætlun fyrir 2005 og hvernig henni miðaði. Starfsmenn sem sátu fundinn upplýstu um þá vinnu sem nú þegar hefur farið fram, t.a.m. sagði Stefán frá vinnu að launaáætlun fyrir grunnskóla sveitarfélagsins.
6. Innsend erindi og til kynningar
Lánasjóður sveitarfélaga v/lækkunar vaxta, bréf dags, 28. september 2004.
7. Önnur mál
Stefán kynnti ósk skólastjóra Heppuskóla um að fastráða tvo stuðningsfulltrúa á heilsárslaunum. Kristín velti því upp hvort þetta erindi ætti að skoða samhliða mati á vinnu aðstoðarkennara við Hafnarskóla. Erindinu er vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Stefán fór yfir störf annarra starfsmanna skólanna en kennara á meðan verkfalli stendur, byggt á upplýsingum frá skólastjórnendum. Samtals eru 36 kennarar í verkfalli í um 34 stöðugildum. Starfsmenn sem eru ekki í verkfalli, þ.e. skólastjórar, stuðningsfulltrúar, skólaliðar, matreiðslufólk, ræstingafólk og stundakennarar, samtals 33 í um 27 stöðugildum. Bæjarráð felur Stefáni að afla upplýsinga um greiðslur til starfsmanna sem ekki eru í verkfalli.
Stefán vakti máls á greiðslum til verktaka í skólaakstri á meðan verkfalli stendur. Bæjarráð felur Stefáni að kanna málið.
Stefán kynnti samningsdrög um mötuneytismál Hafnar- og Heppuskóla við Kaffi Hornið ehf. (Einar Karlsson vék af fundi). Bæjarráð felur Stefáni að ganga frá samningi við Kaffi Hornið ehf. í samræmi við fyrirliggjandi drög.
Hjalti Þór greindi frá erindi frá starfsmanni sveitarfélagsins sem sótt hefur um launalaust leyfi. Bæjarráð felur starfsmönnum sveitarfélagsins að ganga frá málinu.
Fundi slitið kl. 12:50


