Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 270
270. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálanefnd Hornafjarðar 117. fundur 26. október 2004.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 60. fundur 27. október 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2005
Ásta kynnti drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2005. Halldóra lagði áherslu á að skatttekjur yrðu að duga fyrir rekstrargjöldum og þetta þyrfti að hafa í huga við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Bæjarráð leggur áherslu á að starfsmenn og forstöðumenn leiti leiða til að ná fram sparnaði í rekstri.
Fjárhagsáætlun vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Málefni Hvata ehf.
· Bréf Pálma Guðmundssonar stjórnarformanns Hvata ehf. dags. 8. október 2004.
(Elín Magnúsdóttir vék af fundi undir þessum lið).
Bæjarráð telur ekki fært að verða við beiðni Hvata ehf. um frestun eða niðurfellingu fasteignagjalda af húseigninni Dalbraut 2 en beiðnin er tilkomin vegna óska Norðuríss ehf. um lækkun á leigu á áðurnefndri húseign. Sveitarfélagið er hluthafi í báðum félögunum og hefur á þann hátt stutt við þá starfsemi sem þessi félög stunda. Jafnframt er bæjarráð ekki tilbúið til frekari hlutabréfakaupa í félögunum að sinni.
4. Umræða um starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tillögur í samráði við formann menningarmálanefndar og núverandi forstöðumann að hugsanlegri skipulagsbreytingu og hagræðingu innan stofnunarinnar og Nýheimum í heild.
5. Ósk um staðfestingu á að mannvirki hafi verið tekið úr notkun
· Bréf verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar dags. 19.október 2004 f.h. Skeljungs hf.
Bæjarráð staðfestir að mannvirkið hafi verið tekið úr notkun. Tækni- og umhverfissviði falið að svara erindinu.
6. Ósk um fjárveitingu til danskennslu í grunnskólum sveitarfélagsins
· Bréf Huldu Laxdal Hauksdóttur dags. 25. okóber 2004.
Erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
7. Ósk um styrk
· Bréf Háskólasetursins í Hveragerði dags. 1. nóvember 2004.
Í sveitarfélaginu eru engar náttúrulaugar og á þeim forsendum er beiðninni hafnað.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Ósk um upplýsingum um úttekt á nýtingu húsnæðis vegna hugsanlegrar breytingar á leigusamningi milli sýslumannsembættisins og sveitarfélagsins, dags. 25. október 2005.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindinu og því ferli sem málið er í.
· Ráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga og Norræna fötlunarráðsins 18. nóvember 2004 um aðgengi fyrir alla, bréf sambandsins dags. 27. október 2004.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Fundargerð haustfundar Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu 21. október 2004 til kynningar
Til kynningar.
· Verndun og þróun – ósættanlegir hagsmunir? – bréf Norrænu ráðherranefndarinnar dags. 22. október 2004 – bókin er hjá bæjarstjóra.
Til kynningar.
· Málþing vegna nýrrar lagasetningar um tónlistarskóla, bréf Samtaka tónlistarskólastjóra dags. 1. nóvember 2004.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Lengjum háönnina í ferðaþjónustu, bréf Samtaka ferðaþjónustunnar dags. 3. nóvember 2004.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Jöklasetur – Jöklasýning – svar við erindi um stuðning við verkefnin, bréf Siglingastofnunar dags. 5. nóvember 2004.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferð sinni á höfuðborgarsvæðið ásamt starfsmönum Menningarmiðstöðvar vegna stuðnings við Jöklasýningu.
· Uppgjörsmál fyrrverandi starfsmanns HSSA, bréf Umboðsmanns Alþingis dags. 5. nóvember 2004.
Til kynningar.
Önnur mál
· Formaður bæjarráðs gerði grein fyrir fjölskyldudegi sem haldin var 6 nóvember s.l..
· Helgi Már fór yfir tilboð sem borist hafa í framkvæmdir á sniðræsi. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
· Helgi Már kynnti tilboð sem borist hafa í framkvæmdir við Krosseyjarbakka.
· Hjalti gerði grein fyrir bréfi landbúnaðaráðuneytisins, dags. 8. nóvember 2004 varðandi kaup á ríkisjörðinni Sauðanesi. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að málinu.
· Stefán sagði frá vinnu sinni eftir 269. fund bæjarráðs dags. 26. október 2004 þar sem honum var falið að kanna leiðir til þess að létta undir með fjölskyldum í yfirstandandi verkfalli grunnskólakennara og huga að aukinni viðveru.
· Stefán sagði frá framkvæmd við skólamáltíðir.
· Gerð grein fyrir viðhorfum íbúa í Nesjahverfi varðandi staðsetningu leiktækja í hverfinu.
Fundi slitið kl. 12.20


