Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 279
279. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 20. janúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Umhverfisnefnd, 48.fundur, 10. janúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð, 120. fundur, 11. janúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 20. fundur, 12. janúar 2005.
Halldóra þakkaði starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir vinnu að forhönnunarskýrslu um fráveitumál.
Helgi Már upplýsti að bréf hafi borist frá fráveitunefndinni um að framkvæmd við fráveitu sé styrkhæf.
Fundargerð samþykkt.
2. Reglur um félagslega heimaþjónustu
· Upprunalegt skjal
· Umsögn félagsmálaráðs
· Umsögn deildarstjóra heimaþjónustudeildar HSSA.
Umsögnum vísað til Heilbrigðis- og öldrunarráðs til umsagnar.
3. Ósk um tilnefningu sveitarfélagsins um fulltrúa í ráðgjafarnefnd fyrir Skaftafellsþjóðgarð
Bæjarráð tilefnir Halldóru Bergljót Jónsdóttir sem fulltrúa í ráðgjafarnefnd fyrir Skaftafellsþjóðgarð til haustsins 2006. Bæjarráð vill koma þeirri skoðun sinni á framfæri að kjörtímabil ráðgjafarnefndar eigi að miðast við kjörtímabil sveitarstjórnarmanna. Ennfremur ítrekar bæjarráð bókun bæjarstjórnar um stjórn þjóðgarðsins frá 77. fundi bæjarstjórnar, dags. 28. október 2004 þar sem segir:
„Jafnframt hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að nú þegar verði hafin vinna að endurskoðun á lögum um náttúruvernd með það að markmiði að af afloknum sveitarstjórnarkosningum 2006 verði skipuð stjórn fyrir þjóðgarðinn í stað ráðgjafanefndar.“
4. Málefni Háskólasetur á Hornafirði
Lagðir fram minnispunktar frá fundi með forstöðumanni og formanni stjórnar Háskólaseturs. Á fundinum bar formaður stjórnar setursins upp ósk um að sveitarfélagið leggi til fjármuni til að standa undir þriðjungi kostnaðar við hálft stöðugildi við setrið. Vegagerð ríkisins og Háskóli Íslands munu sameiginlega standa undir tveimur þriðja af kostnaði við starfið.
Kom fram að stöðugildið sé til eins árs og markmiðið að tilvonandi starfsmaður vinni að því að koma varanlegum stoðum undir rekstur setursins.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í kostnaði varðandi starfsmann við Háskólasetur.
5. Umsókn um tækifærisvínveitingaleyfi
· Bréf Þorbjargar Arnórsdóttur á Hala, fh. Þorrablótsnefndar í Suðursveit og Mýrum.
Bæjarráð samþykkir að veita nefndinni tækifærisvínveitingaleyfi þegar húsaleigusamningur liggur fyrir.
6. Innsend erindi
· Bréf Ferðamálaráðs Íslands vegna markaðssetningu Austur-Skaftfafellssýslu og styrkingu upplýsingamiðstöðvar, dags. 7. janúar 2005.
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum sínum með svar Ferðamálaráðs og óskar eftir því við hlutaðeigandi aðila að unnið sé að því ásamt heimamönnum að rekstur upplýsingamiðstöðvar á Hornafirði verði styrktur m.a. með það að markmiði að upplýsingagjöf til ferðamanna og markaðssetning svæðisins verði markvissari og faglegri. Bæjarráð ítrekar að núverandi skipting framlaga til reksturs upplýsingamiðstöðva sé ófagleg og óréttlát. Undirstrikað skal að samkvæmt núverandi skiptingu er ekki gert ráð fyrir upplýsingagjöf á svæðinu frá suðvesturhorninu að Mið-Austurlandi, eða hálfan hringveginn, nema að litlu leyti. Á þessu svæði eru margar eftirsóttustu náttúruperlur landsins og gífurlegur fjöldi ferðamanna heimsækir.
· Bréf Fræðslu fyrir fatlaða og aðstandendur FFA, ódagsett.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Bréf Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins, vegna fjárheimildar Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna samnings um heilsugæslu, dags. 11. janúar 2005.
Til kynningar.
· Bréf Félagsmálaráðuneytisins vegna úthlutunar á útgjaldajöfnunarframlagi og framlagi til jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, dags. 11. janúar 2005.
Til kynningar.
· Bréf Samband íslenskra sveitarfélaga vegna skil á upplýsingum í Upplýsingaveitu sveitarfélaga, dags. 14. janúar 2005.
Til kynningar.
· Bréf RARIK vegna breytinga á raforkuviðskiptum, dags. 12. janúar 2005.
Starfsmönnum falið að vinna greinargerð um raforkuviðskipti sveitarfélagsins við RARIK á undanförnum árum og hvernig viðskiptum við raforkusölufyrirtæki verði háttað í framhaldi af nýjum raforkulögum.
7. Önnur mál
Bæjarstjóri upplýsti að fundur með forráðamönnum Ratsjárstofnunar er fyrirhugaður 2. febrúar.
Hjalti Þór kynnti erindi Rannsóknar og ráðgjafar fyrir ferðaþjónustuna. Um er að ræða ósk um fjárveitingu til útgáfu sögukorts fyrir Austurland.
Starfsmönnum falið að kanna möguleika á notkun netsíma á stofnunum sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 11.20.


