Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 407
407. fundur
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 36. fundur, 30. janúar 2008.
Atvinnumálanefnd samþykkti eftirfarandi tillögur á fundi sínum:
1. Að lagðar verði allt að 2 milljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu. Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir. Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið en leggur jafnframt áherslu á að aðrir hagsmunaaðilar leggi fram fjármuni í verkefnið.
2. Að lögð verði allt að 1 milljón króna í atvinnuuppbyggingu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Að mati atvinnumálanefndar er þessi vinna á frumstigi og telur nefndin mikilvægt að gerð verði nákvæm verk- og kostnaðaráætlun. Þá leggur nefndin til að leitað verði til Háskólasetursins á Hornafirði, Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. og Ríki Vatnajökuls ehf. til að finna verkefninu réttan farveg.
3. Að lagðar verði 5,8 miljónir króna í verkefni sem tengjast matvælaframleiðslu. Atvinnumálanefnd leggur að þessu sinni áherslu á að verkefni á sviði sjávarútvegs verði styrkt sérstaklega. Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hafa verið í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um slík verkefni og leggur Atvinnumálanefnd til að þessir aðilar verði fengnir til að vinna þetta verkefni.
Tillögur atvinnumálanefndar um ráðstöfun á úthlutuðu fé félagsmálaráðuneytisins vegna mótvægisaðgerða samþykkt.
Rætt var um fram komnar hugmyndir um fjallskil.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 9. fundur.
Fundargerð samþykkt.
· Ungmennaráð Hornafjarðar, 2. fundur 25. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
2. Málefni Jöklaseturs
Rætt var um rekstrarkostnað og með hvaða hætti megi ná betri tökum á rekstrinum. Framlögð ósk stjórnar Jöklaseturs, um aukaframlag að upphæð kr. 2 millj. vegna rekstrarársins 2007, samþykkt. Bæjarráð ítrekar að leitað skuli eftir samningum við Vatnajökulsþjóðgarð um jöklasýninguna. Bæjarstjóra jafnframt falið að ræða við stjórn setursins um reksturinn.
3. Frummatsskýrsla vegna hringvegar um Hornafjörð
Niðurstaða matsvinnu Vegagerðarinnar vegna nýs hringvegar um Hornafjörð er að mæla með svokallaðri leið 1. Um þrjár meginleiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar en auk þeirra leggur Vegagerðin fram mismunandi útfærslu á þessum þremur leiðum, sbr. bls. 13 í frummatsskýrslu. Umhverfisáhrif, umferðaröryggi og greiðfærni ráða mestu um afstöðu Vegagerðarinnar. Bæjarráð Hornafjarðar er ósammála niðurstöðu Vegagerðarinnar í veigamiklum atriðum og leggur þar til grundvallar auknar vegstyttingar, umferðaröryggi og að draga sem mest úr áhrifum á hefðbundin landbúnaðarafnot.
Skipta má fyrirhugaðri framkvæmd í þrennt. Í fyrsta lagi liggur fyrirhugð leið um sveitina Mýrar sem er vestan Hornafjarðarfljóta. Í öðru lagi um Skógey sem er á milli Hornafjarðarfljóta og Hoffellssár. Í þriðja lagi liggur leiðin um Nesjasveit sem er austan Hornafjarðarfljóta.
Á Mýrum tekur Vegagerðin leið 1 umfram aðrar leiðir sem er með öllu óskiljanlegt vegna umferðaröryggis. Leið 1 liggur á sama stað og núverandi vegur við Holtabæi og sveigir til suðurs á milli Holts og Tjarnar. Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að nýtt vegstæði liggi eins og leið 3 gerir ráð fyrir, þ.e. að sveigja frá núverandi hringvegi um 2,5 km fyrir austan Hólm og þaðan liggur hún sunnan við Stóraból og þverar Hornafjarðarfljót við móts við Skógey. Með þessu fækkar vegtengingum stórlega og eykur öryggi íbúa og vegfarenda.
Í matsvinnu Vegagerðarinnar segir á bls. 14 að hvaða leið sem sé valin um Skógey séu áhrifin sambærileg. Undir þetta mat getur bæjarráð Hornafjarðar tekið.
Í Nesjum liggur leið 1 rétt norðan við ósa Laxá og þverar hana rétt neðan við Borgir og sveigir inn á núverandi hringveg við Árnanes. Bæjarráð Hornafjarðar vill benda á að á þessum slóðum er afar þétt byggð og mikil landbúnaðarstarfsemi. Á þessari leið liggur leiðin, skv. tillögu Vegagerðarinnar, yfir skeiðbraut hestamanna, yfir gróin tún í Borgum og yfir ræktunarlönd Akurness og Seljavalla. Ennfremur mun þessi leið ekki auka umferðaröryggi fram yfir núverandi ástand því vegtengingar verða jafnmargar og áður. Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að vegurinn um Nesjasveit liggi sunnan við Árnanes eins og leið 3 gerir ráð fyrir. Sú veglagning styttir vegalengdir mest innan héraðsins og eykur umferðaröryggi stórlega umfram tillögu vegagerðarinnar.
Stytting vegalengda innan Sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati bæjarráðs Hornafjarðar. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að bæjarráð Hornafjarðar telur að almannahagsmunir liggi við.
Bæjarráð Hornafjarðar er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Bæjarráð Hornafjarðar hafnar því að leið 2 verði farin.
Bæjarráð Hornafjarðar telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2.
Til að milda umhverfisáhrif leiðar 3 leggur sveitarfélagið til að leiðin liggi ekki yfir Skarðsfjörð eins og núverandi tillaga gerir ráð fyrir heldur liggja austan Hafnarvegar í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Þessi leið mun ekki hafa umhverfisáhrif á Skarðsfjörð.
Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Bæjarráð Hornafjarðar telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst.
Í frummatsskýrslu kemur fram á bls. 22 að kostnaður leiðar 1 sé samtals 2,324 milljarða kr. en leiðar 3 samtals 2,977 milljarða kr. Sveitarfélagið hefur áður gert athugasemdir við fjárhagslegt mat þessara kosta og telur útreikninga Vegagerðarinnar ótrúverðuga. Í útreikningum á kostnaði á leið 1 er ekki teknar inn í endurbætur á vegarkaflanum frá Hólmi að Holtum og einnig frá Árnanesi að Haga. Til að samanburður á milli valkosta Vegagerðarinnar sé sanngjarn þarf að taka endurbætur á þessum köflum með í dæmið. Fjárhagslegur munur á milli þessara kosta er því hverfandi að mati bæjarráðs og getur því ekki legið til grundvallar þegar endanlegt vegstæði verði valið.
Það er því niðurstaða bæjarráðs Hornafjarðar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttingu á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér. Niðurstaða bæjarráðs Hornafjarðar er því að leið 3 verði fyrir valinu með þeirri breytingu að ekki verði farið út í Skarðsfjörð með veginn.
4. Greinargerð starfshóps um félagslíf grunnskólanema á Hornafirði
Eygló Illugadóttir, formaður starfshóps um félagslíf grunnskólanema, mætti á fund nefndarinnar undir þessum lið. Fór hún yfir vinnu og helstu tillögur nefndarinnar.
Hjalti þakkaði starfshópnum fyrir vinnuna. Hann gerði að umtalsefni áherslu hópsins á sérstakan starfsmann sem veitti félagsmiðstöðinni forstöðu. Sagði Eygló algjöra samstöðu hafa verið í nefndinni um það mál. Í sambandi við kaflann um forvarnir benti Hjalti á nýjan samning sveitarfélagsins og Sindra þar sem félaginu er uppálagt að móta sér forvarna- og lýðheilsustefnu. Í sambandi við húsnæði félagsmiðstöðvar sagði hann mikilvægt að átta sig á stærð húsnæðisins í fermetrum talið. Spurði um Sindrabæ, hvernig hann falli að hugmyndum starfshópsins og einnig hvort félagsmiðstöð gæti tengst byggingu sem hýsa á sal grunnskólans í framtíðinni.
Starfsmönnum falið að fara yfir tillögur nefndarinnar, þar á meðal ráðningu starfsmanns og gera bæjarráði grein fyrir sínum hugmyndum.
5. Humarhátíð 2008
Bæjarráð samþykkir að Humarhátíðarnefnd fái kr. 300.000 að auki til að halda Humarhátíð líkt og gert var í fyrra. Heildarframlag til nefndarinnar verði þannig 1200 þús. krónur. Björn Ingi sagði það sína skoðun að sveitarfélagið þurfi að koma sýnilegar að hátíðinni, svo sem með ýmsum viðburðum.
6. Tilboð í malbikun
Haukur Ingi gerði grein fyrir tilboði í malbik og kom fram að verð sé hagstæðara ef meira magn er keypt. Bæjarráð samþykkir að fresta malbikunarframkvæmdum á árinu 2008 til ársins 2009. Gert er ráð fyrir að leggja 70 m. kr. í malbikunarframkvæmdir á árinu 2009.
7. Vefmál
Bæjarráð hefur áður samþykkt að taka tilboði Hátíðni enda lægsta tilboðið. Jafnframt var samþykkt svar til Galdurs ehf. vegna fyrirspurnar fyrirtækisins. Samþykkt að forsvarsmaður Hátíðni komi á fund bæjarráðs í næstu viku til að ræða hugmyndir um áframhaldandi vinnu að stjórnsýsluvef.
8. Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa samþykkt.
9. Framkvæmdayfirlit vegna 3ja ára áætlunar ?verður sent út í tölvupósti
Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 500 m.kr. og taki langtímalán að upphæð 50,0 m.kr. á móti eru afborganir langtímalána 251,02 m.kr. Langtímalán aðalsjóðs lækka því á tímabilinu um 200,0 m.kr. Ný langtímalán B-hluta að upphæð 32,0 m.kr. á móti afborgun langtímalána að upphæð 64,8 m.kr. Langtímalán B-hluta lækka því á tímabilinu um 32,8 m.kr. Lagður fram listi með fyrirhuguðum framkvæmdum 2009-2011.
10. Afskriftir viðskiptaskulda
Bæjarráð samþykkir að afskrifa viðskiptaskuldir, að upphæð kr. 4.925.744.-, sbr. framlagt minnisblað.
11. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um samgönguáætlun 292. mál
Til kynningar.
· http://www.althingi.is/altext/135/s/0332.html
Til kynningar.
12. Innsend bréf og erindi
· Landsskrifstofa Staðardagskrár 21, Ólafsvíkuryfirlýsingin, bréf dags. 18. janúar 2008.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga/Samgönguráðuneytið,fundur um almenningssamgöngur á Grand hótel í Reykjavík, 7. febrúar 2008.
Til kynningar.
· Saman-hópurinn, bréf dags. 29. janúar 2008, ósk um styrk.
Umsókn hafnað.
· Sverrir Scheving Thorsteinsson, dags. 30. janúar 2008, varðandi ósk um frest til ákvarðana um söfn hans.
Bæjarstjóra falið að ljúka málinu á grundvelli þess samnings sem gerður var 15. maí 2007.
· Hulda Björk Svansdóttir, tölvupóstur 31. janúar 2007, ósk um stuðning sveitarfélagsins við heilsuverkefnið ?Heil og sæl í vinnunni?.
Starfsmönnum í ráðhúsi falið að koma með tillögu um málið.
13. Önnur mál
· Greint frá því að þorrablótsnefnd Nesja- og Lónmanna, Umf. Máni og Kvenfélagið Vaka hafi fært Mánagarði að gjöf 80 stóla að andvirði kr. 900 þús. Bæjarráð þakkar þessa rausnarlegu gjöf.
Fundi slitið kl. 17:45


