Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 426
Fundur 426
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 9. júlí 2008kl. 12:10. Boðað var til þessa fundar, bókað í fundargerð, á 425. fundi bæjarráðs.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Ákvörðun um útboð á skólamáltíðum fyrir grunnskólanema í 4. – 10. bekk
Hjalti og Stefán greindu frá þeirri vinnu sem fram hefur farið frá bæjarráðsfundi sem haldinn var 7. júlí. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um mat fyrir nemendur í 4. – 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar við Kaffihornið fyrir næsta skólaár. Jafnframt samþykkt að skólamáltíðir verði boðnar út á fyrri hluta næsta árs.
2. Drög að reglum um úthlutun lóða (sjá meðfylgjandi skjal)
Farið yfir útsend gögn, drög að reglum. Samþykkt að vísa drögum til áframhaldandi vinnu hjá starfsmönnum. Drögunum vísað til byggingar- og skipulagsnefndar. Undir þessum lið var rætt um lóðir sem úthlutað hefur verið og ekki hafnar byggingar á. Starfsmanni falið að taka saman yfirlit yfir þessar lóðir. Einnig rætt um umhirðu á lóðum sem eru í eigu einstaklinga/félaga.
3. Tilboð í dúk á sundlaug (sjá meðfylgjandi skjal)
Haukur Ingi fór yfir tilboðið. Samþykkt að ganga til samninga við Ossa ehf. á grundvelli tilboðs.
4. Upplýsingar um refa og minkaveiðar
(Halldóra B. Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið) Farið yfir stöðuna, veiðisvæði og veiðitíma. Kynntar voru hugmyndir um að árangurstengja veiðarnar þannig að nái veiðimenn ákv. fjölda dýra muni veiðilaun til þeirra hækka hlutfallslega. Einnig lögð áhersla á að grenjaskrám sé skilað. Samþykkt að hækka veiðilaun til ráðinna veiðimanna sem ná 20 dýrum eða meira á ári um 25%. Tekur gildi á þessu ári. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2008. Bæjarráð leggur áherslu á að ríkisvaldið móti sér stefnu í þessum málum og taki á sig stærri hlut í greiðslum vegna veiðanna en reyndin hefur verið.
5. Önnur mál
Kynnt bréf iðnaðarráðherra, dags. 1. júlí 2008, þar sem fjallað er um umhverfismál, hækkandi eldsneytisverð og nauðsyn þess að ýta þurfi undir og efla framleiðslu á innlendum orkugjöfum fyrir bíla- og skipaflotann. Ráðherra hefur áhuga á að undirrita viljayfirlýsingu um þátttöku í verkefni sem snýr að því “að undirbúa orkuskipti með framleiðslu á mengunarlausum, innlendum orkugjöfum fyrir bíla- og skipaflotann.” Undir þetta var vel tekið.
Fundi slitið kl. 13:10


