Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 428
Fundur 428
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi fimmtudaginn 7. ágúst 2008 kl. 09:00. Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Rekstrarstaða 30. júní 2008
· Bæjarsjóður
Ásta fór yfir útsend gögn. Útgjöld í A-hluta bæjarsjóðs standa þann 30. 06. í 457.001.000.- sem er um 50% af fjárhagsáætlun ársins. Farið yfir framkvæmdir ársins en búið er að framkvæma fyrir 114 m.kr. í A-hluta og um 31 m.kr. fyrir B-hluta. Haukur greindi frá nýrri kostnaðaráætlun vegna sundlaugarbyggingar sem send verður á bæjarfulltrúa.
· Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Staða HSSA eftir hálft ár er halli um tæplega 10,2 m.kr. og er það vegna halla á heilsugæslusviði. Halldóra lagði áherslu á að sóttar verði tekjur til ríkisins vegna heilsugæslusviðsins þannig að heilsugæslan verði ekki látin sitja eftir í samningum við ríkið. Hjalti sagði að verið væri að reka HSSA undir einum hatti og að þannig ætti að líta á stofnunina en gæta yrði þess að tekjuflæðið sé rétt. Sagði hann að við ættum að vera stolt yfir því að stofnunin sé vel rekin og hafnaði því að menn væru ekki vakandi yfir rekstri stofnunarinnar. Árni tók undir það sjónarmið að horft verði á rekstur stofnunarinnar sem einnar heildar. Elín sagði að mikið hafi verið unnið í þessum málaflokki. Halldóra taldi það eðlilega ráðstöfun að annar aðili en Ríkisendurskoðun hefði farið yfir rekstur HSSA og samninga þar að lútandi. Hjalti taldi Ríkisendurskoðun ekki vera vilhalla ríkinu og nefndi dæmi máli sínu til stuðnings.
2. Deiliskipulagstillaga Skaftárhreppi - Hólaskjól – ósk um athugsemdir
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við framangreinda deiliskipulagstillögu.
3. Drög að tillögu að aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 - ósk um ábendingar og athugasemdir - slóð www.alta.is/fdh
Bæjarráð hefur engar ábendingar eða athugasemdir vegna framangreinds aðalskipulags. Minnt er á að mörk þessara sveitarfélaga liggja á jökli.
4. Umsókn um lóðarstækkun
Umsókn um lóðarstækkun vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Frágangur á girðingum umhverfis nýja sundlaug
(Birgir Árnason og Svavar Sigurjónsson sátu fundinn undir þessum lið) Farið yfir útsend gögn frá VST-RAFTEIKNINGU hf. og Verkfræðiþjónustunni ehf. Fram kom í máli Hauks Inga að umframkostnaður vegna stoðveggjar yrði um 3 milljónir, þ.e. í stað girðingar sem reist yrði á steyptum undirstöðum (tunnum) en ekki stoðvegg. Halldóra gerði að umtalsefni póst frá Flosa Sigurðssyni (VST) þar sem fram kæmi að ekki væri búið að ákveða hvernig grundun undirstaða undir rennibraut ættu að vera. Svavar sagði að ekki þyrfti að jarðvegsskipta fyrir undirstöður undir rennibraut umfram það sem gert hefur verið. Halldóra taldi mismun á tveimur útfærslum á girðingu/stoðvegg vera 4,5 milljónir en ekki 3 milljónir. Birgir sagðist sannfærður um að það væri skynsamlegast að byggja á stoðvegg og tók Svavar undir þau orð. Halldóra taldi að laga mætti (hækka) land utan girðingar.
Bæjarráð samþykkir fram lagðar tillögur um stoðvegg umhverfis sundlaugargarð.
Þá var farið yfir nýjar tillögur að hellulögn þar sem dregið er töluvert úr hellumagni við rennibraut og í sundlaugargarði miðað við fyrri áætlanir, sem lækka kostnað við lögnina um kr. 650 þús. Bæjarráð samþykkir að dregið verði úr hellulögn í samræmi við tillögur hönnuða.
Halldóra gerði hitalögn í búningsklefum að umtalsefni og efaðist um að skynsamlegast sé að draga megi úr henni frá upphaflegri áætlun eins og fram hefur komið hjá hönnuðum. Tók Svavar undir það sjónarmið. Þá var rætt um stöðuna við byggingu sundlaugar, um dúklagningu, hvenær eigi að setja hann á laugina og hvenær sundlaugin verði tekin í notkun.
Undir þessum lið var einnig farið yfir hæðarmælingu á Sindravöllum, dags. 28. 07. 2008 sem sýnir nokkurt sig frá upphaflegum mælingum, einkum í norðurhluta vallarins. Hönnuðum hefur verið gerð grein fyrir þessu sigi.
6. Orkusjóður – jarðhitaleitarátak 2008 – 2010
Bæjarráð samþykkir að fá Ómar Bjarka Smárason á fund bæjarráðs vegna þessa máls áður en það fær fullnaðarafgreiðslu.
7. Erindi Afls starfsgreinafélags, ósk um upplýsingar vegna kjara ungmenna í vinnuskóla sveitarfélagsins.
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu málsins og ákvörðunum sem teknar hafa verið vegna kjara ungmenna. Halldóra taldi eðlilegt að unglingum undir 16 ára aldri verði greitt ákveðið hlutfall af launaflokki, mismunandi eftir verkefnum og aldri unglinganna. Hjalti sagði sveitarfélög hafa heimild til að ákveða laun ungmenna í vinnuskólum. Hann taldi hins vegar mikilvægt að haft verði samráð við stéttarfélög við ákvörðun launa þegar ungmenni gegna öðrum störfum á vegum sveitarfélagsins en hefðbundnum sumarstörfum. Halldóra lagði áherslu á samstarf við Launanefnd sveitarfélaga þegar ákvarðanir eru teknar um laun ungmenna. Árni lagði áherslu á gott samstarf við stéttarflög vegna þessara mála. Starfsmönnum falið að svara erindi Afls starfsgreinafélags.
8. Beiðni um styrk – útvarp fyrir innflytjendur
Styrkbeiðni hafnað.
9. Nefndalaun
Ásta fór yfir útsend gögn og skýrði m.a. hækkanir launa á almennum vinnumarkaði (FOSS) frá 2003 – 2008. Fram kom í máli hennar að laun kjörinna fulltrúa hafi ekki tekið breytingum frá október 2002 en á sama tíma hafa laun á almennum vinnumarkaði um a.m.k. 20%. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum, Halldóra sat hjá, að laun fyrir setu í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum sveitarfélagsins hækki um 10%. Hækkunin taki gildi frá og með janúar 2008. Framvegis muni umrædd laun taka sömu breytingum og kjarasamningar opinberra starfsmanna á Suðurlandi (FOSS).
10. Almannavarnir
Bæjarráð leggur til að almannavarnanefnd verði skipuð fimm fulltrúum sem eru sýslumaður, tveir fulltrúar sveitarfélagsins, einn fulltrúi Björgunarfélags Hornafjarðar og einn fulltrúi Björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum. Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar nýrra almannavarnalaga.
11. Styrkir vegna bættrar lýsingar í dreifbýli
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til þeirra sjö aðila sem lögðu inn umsókn, sbr. útsend gögn. Veittur verði hámarksstyrkur, samkvæmt reglum, kr. 65.000.- til hvers umsækjanda.
12. Sauðfjárveikivarnir í Hornafirði, sbr. tölvupóstsamskipti þar að lútandi
Með breyttu rennsli Hornafjarðarfljóta hefur sauðfjárveikivarnalína á milli Nesja og Mýra brostið. Bæjarráð hefur áður samþykkt að girða þurfi frá brú yfir Hornafjarðarfljót við eystri farveg Fljótanna að Hoffellsjökli. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við stjórnvöld (Matvælastofnun) og lagði áherslu á að brýnt sé að bregðast við þessari stöðu, t.d. með girðingu. Hjalti sagði það hins vegar ekki vera í verkahring sveitarfélagsins að reisa og sjá um slíka girðingu en spurning hvað gera skuli. Bæjarráð leggur áherslu á að Matvælastofnun eigi að sinna sínum skyldum við sauðfjárveikivarnir. Jafnframt er kallað eftir formlegu svari frá Matvælastofnun vegna þessa máls. Halldóra sagði það sína skoðun, ef Matvælastofnun sinni ekki sínum skyldum, að þá verði kostnaður vegna girðingar sóttur með fjárlögum.
13. Innsend bréf og erindi
· Bréf formanns yfirlandskiptanefndar, dags. 22. júlí og 31. júlí 2008 vegna landskipta í Skógey.
Bæjarráð sammála um að andmæla ekki kröfu um yfirlandskipti vegna Skógeyjar.
Samþykkt að Stefán Ólafsson gangi fyrir hönd sveitarfélagsins á vettvang í Skógey þann 23. ágúst nk., sbr. boð um slíkt í framangreindu bréfi.
· Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, dags. 21. júlí 2008, vegna efnistöku í Friðsældarnámu.
Hjalti greindi frá því að Vegagerðin hafi ekki svarað bréfi vegna þessa máls. Bæjarráð ítrekar fyrri yfirlýsingar um mikilvægi þess að Friðsældarnámunni verði haldið opinni til efnistöku.
· Bréf Siglingastofnunar, dags. 10. júlí 2008, bráðabirgðaákvæði um verðbætur í útboðum hafnarframkvæmda.
Vísað til Hafnarstjórnar.
· Bréf Siglingastofnunar, dags. 17. júlí 2008, styrkur vegna dælingar úr Hornafjarðarhöfn.
Vísað til Hafnarstjórnar.
· Bréf Gísla Sigurbergssonar, dags. 28. júlí, varðar afskipti af framkvæmdum við Hornafjarðarfljót.
Bæjarstjóri fór yfir málið og greindi frá samskiptum við aðila vegna þess. Áður hafði hann kynnt drög að svarbréfi í tölvupósti til bæjarstjórnarmanna. Halldóra velti fyrir sér hvaða vinnureglur gildi við hinar ýmsu framkvæmdir og sagði að allir eigi að lúta sömu reglum. Árni tók undir þau orð og styður bæjarstjóra heilshugar í þessu máli. Tók Elín undir þau orð. Hjalti sagði það algjört grundvallaratriði að menn hafi formlegt leyfi til framkvæmda sem eru leyfisskyldar. Því sagði hann mikilvægt að sveitarfélagið gefi út skýr skilaboð um þessi mál.
· Bréf Samgönguráðuneytisins dags. 28. júlí 2008, uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna.
Til kynningar.
· Bréf Samgönguráðuneytisins dags. 29. júlí 2008, reglur um ráðstöfun 1.400 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Siglingastofnun, 2 fundargerðir verkfunda v. Álaugareyjarbryggju, sk. beiðni bæjarráðs á 427. fundi.
Hjalti greindi frá framvindu nýs stálþils við Álaugareyjarbryggju sem gengið hefur dræmt vegna erfiðleika við að reka niður stálþilið. Halldóra spurði hversu mikið á eftir áætlun verkið væri. Hjalti sagði að það hafi átt að vera búið um miðjan júlí sl. Vísað til hafnarstjórnar.
14. Önnur mál
- (Svavar Sigurjónsson kom inn á fundinn undir þessum lið.) Framkvæmdir á Leirusvæði. Svavar fór yfir áætlun um jarðvegsskipti undir götur, hækkun á landi og farg á lóðir.
- Halldóra spurðist fyrir um eftirfarandi: Lista yfir húseignir í eigu sveitarfélagsins, kostnaðaráætlun fyrir knattspyrnuhús, viðhaldsþörf fyrir Sunnubraut 3, stóra mastrið í miðbæ Hafnar og framtíð þess.
- Næsti fundur bæjarráðs verður mánudaginn 18. ágúst nk. kl. 16:00


