Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 431
431. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 1. september 2008kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 184. fundur 26. ágúst 2008.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með samstarf við Stígamót.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 106. fundur 27. ágúst 2008.
Halldóra spurði um heimavistamál og fjölda í árgöngum á leikskólum. Stefán svaraði fyrirspurnunum um heimavist. Rætt var um reglur um sí- og endurmenntun. Halldóra fagnar því að komin sé skrið á samræmdar reglur um sí- og endurmenntun einnig spurðist hún fyrir um vinnu við starfsmannastefnu sveitarfélagsins. Stefán upplýsti að verið væri að vinna að þessum málum.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 756. fundur 22. ágúst 2008.
Bæjarráð samþykkir eftirtaldar bókanir:
Bæjarráð Hornafjarðar tekur heilshugar undir yfirlýsingu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem samþykkt var á 756. fundi stjórnarinnar þar sem skorað er á ríkisstjórnina að ganga til samningaviðræðna við Samband íslenskra sveitarfélaga um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem fjallað er um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna í landinu. Um leið er minnt á að Sveitarfélagið Hornafjörður hefur verið með þennan málaflokk á sínum höndum frá ársbyrjun 1997 og lýsir yfir ánægju sinni með það verkefni.
2. Skipun starfshóps vegna skólamála, sbr. bókun skólanefndar
Bæjarráð samþykkir að skipað verði í sex manna starfshóp sem fjalla á um hugsanlegar breytingar á skipan skólamála í samræmi við tillögu skólanefndar. Bæjarráð telur rétt að einn þriggja fulltrúa foreldra í skólaráði verði skipaður í starfshópinn.
3. Beiðni um að malarnáma í Almannaskarði verði tekin inn í aðalskipulag
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Umsókn um framkvæmdaleyfi til að dýpka eystri farveg Hornafjarðarfljóts
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
Halldóra spurðist fyrir um það fé sem veitt var á fjárlögum til varnargarða á svæðinu, hversu mikið og hvernig því hafi verið varið.
5. Beiðni um styrk – Landssamtök áhugafólks um flogaveiki
Bæjarráð samþykkir að veita Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki umbeðinn 30.000.- kr. styrk. Tekið af óráðstöfuðu.
6. Innsend bréf og erindi
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 14. ágúst 2008 ,allsherjarþing Evrópusamtaka sveitarfélaga 2009 í Malmö 22.-24. apríl 2009.
Til kynningar.
· SASS, bréf dags. 21. ágúst 2008, aðild sveitarfélagsins að SASS.
Árni og Elín lýsa yfir ánægju með samþykkt stjórnar SASS um aðild Sveitarfélagsins Hornafjarðar að samtökunum.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Eftirlitsskýrsla Haust 2008 22. ágúst 2008,vegna urðunarstaðar í Lóni.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 28. ágúst 2008, Minningarbók um Hrafnkel A. Jónsson – boð um birtingu nafna á Tabula memorandium og kaup á bókinni.
Samþykkt að kaupa eitt eintak af væntanlegri Minningarbók um Hrafnkel A. Jónsson.
7. Önnur mál
· Lúðrasveit Hornafjarðar - umsókn um fjárstyrk vegna ferðar á lúðrasveitamót Sambands íslenskra lúðrasveita. Samþykkt að veita kr. 50.000.- til að styrkja yngri meðlimi sveitarinnar til ferðar á mótið. Tekið af óráðstöfuðu.
· Stefán greind frá heimsókn hafnaráðs og starfsmanna Siglingastofnunar sl. fimmtudag.
· Haukur greindi frá að Sirkus Agora hafi óskað eftir stað fyrir sirkus. Sirkusinn verður 15. september á túni við Fiskhól. Einnig sagði hann frá heimsókn 65 fornbíla til Hafnar sem verður 10. sept. nk.
Fundi slitið kl. 17:15


