Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 442
442. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 1. desember 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 44. fundur 26. nóvember 2008.
Hjalti greindi frá fyrirhuguðum fundi sem verður 5. desember, sbr. 2. lið á dagskrá atvinnumálanefndar. Einnig gerði hann að umtalsefni 5. lið á dagskrá og nýtingu þess fjár sem um er rætt í 5. lið. Samþykkt að auglýsa styrki vegna smáframleiðslu matvæla til umsóknar, sbr. samþykkt atvinnumálanefndar.
Hjalti greindi frá fyrirhuguðum fundi með starfsmönnum fyrirtækis sem sýnt hefur áhuga á vatnsútflutningi frá Höfn.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálráð Hornafjarðar, 188. fundur 25. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðar, 107. fundur 25. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 109. fundur 26. nóvember 2008.
Undir þessum lið voru teknar til umfjöllunar „Reglur um íþrótta- og tómstundakort” sem skólanefnd hafði afgreitt á 109. fundi með áorðnum breytingum. Árni lagði til að áfram verði eftirfarandi sett inn í reglurnar á ný: Með íþrótta- og tómstundakortinu má greiða fyrir þátttöku í sérstökum samstarfsverkefnum eða námskeiðum sem hafa það að markmiði að ná til ófélagsbundinna barna og unglinga og virkja þau í skipulögðu félagsstarfi. Var þessi tillaga Árna samþykkt.
Samþykkt að vísa reglum um íþrótta- og tómstundakort til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Árni gerði grein fyrir afstöðu sinni til stjórnunarfyrirkomulags í Grunnskóla Hornafjarðar með eftirfarandi bókun: Undirritaður tekur undir bókun meirihluta skólanefndar um stjórnunarþátt Grunnskóla Hornafjarðar eftir að allt skólahald flyst á Höfn. Að öðru leyti vísar undirritaður til bókunar sinnar frá 439. fundi bæjarráðs frá 10. nóvember síðastliðnum. Vék hann því næst af fundi undir þessum lið á dagskrá skólanefndar. Hjalti taldi að miðað við það sem fram kemur í fundargerð sé ekki mikill meiningamunur innan skólanefndar um málið. Töluverðar umræður sköpuðust um málið.
Samþykkt að bæjarstjóri ræði við skólastjórnina í samræmi við bókun skólanefndar og umræður á fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 10. fundur 25. nóvember 2008.
Hjalti, Björn Ingi og Stefán greindu frá fundi með foreldrum skólabarna sem haldinn var 26. nóvember sl.
Fundargerð samþykkt.
2. Bæjarsjóður - staða 31. október
Ásta fór yfir stöðuna. Sagði hún að miðað við fjárhagsáætlun 2008 sé rekstur sveitarfélagsins í jafnvægi.
3. Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir starfsmannastefnuna.
Starfsmannastefnu ásamt meðfylgjandi reglum sem eru siðareglur starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar, verklagsreglur um áminningu og brotvísun starfsmanna, jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar, reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar og reglur um endurmenntun/framhaldsnám starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4. Drög að hreindýraarði 2008
Til kynningar. Skrá um úthlutun liggur frammi á bæjarskrifstofum.
5. Tilboð í verklýsingu fyrir vinnuskóla
Farið yfir tilboð í verklýsingu fyrir vinnuskóla frá Náttúrulega ehf. Samþykkt að taka tilboðinu.
6. Málefni Nýherjabúða og Hvata
Hjalti greindi frá stöðu mála.
7. Innsend bréf og erindi
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 17. nóv. 2008, kostnaður vegna yfirlandskipta.
Til kynningar.
· Úlfar Helgason og fl., samrit af bréfi til Vegagerðarinnar dags. 13. október 2008, vegur uppúr botni Hoffellsdals.
Vísað til umsagnar í byggingar- og skipulagsnefndar.
· Gigtarráð, bréf dags. 19. nóvember 2008, Hreyfing er heilsubót, hvatning til að íþróttamannvirki sveitarfélaga nýtist til heilsueflingar almennings.
Til kynningar.
· Styrktarsjóður Sólheima, bréf dags. 24. nóvember 2008, ósk um styrk til byggingar áhaldahúss og trésmíðaverkstæðis.
Erindinu hafnað.
· Vegagerðin, bréf dags. 24. nóvember 2008, svar við bréfi HIE 21. nóvember s.l., þar sem óskað er eftir umsögn Vegagerðarinnar á nýrri tengingu að Árnanesbæjum, auk þeirra vegkafla sem kunna að falla úr notkun við aðalskipulagsbreytingu.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Framkvæmdasjóður fatlaðra, svarbréf dags. 21. nóvember 2008, vegna umsóknar um framlag vegna breytinga á aðgengi í Tónskóla A-Skaft.
Til kynningar.
· Grunnskóli Hornafjarðar, bréf dags. 26. nóv. 2008, ósk um styrk vegna ferðar Klakanna á First Lego League í Kaupmannahöfn 1.-3. maí 2009.
Vísað til starfsmanna að afgreiða erindið með sambærilegum hætti og gert var sl. ár.
· Vegagerðin, Norðaustursvæði, bréf dags. 24. nóvember 2008, samningur um vegahald þjóðvega á Hornafirði 2008.
Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi samning.
8. Önnur mál
- Ásta greindi frá erindi leigjanda íbúðar í kaupleigukerfinu, ósk um að sveitarfélagið innleysi íbúðina. Bæjarráð samþykkir erindið.
- (Ásta vék af fundi undir þessum lið annarra mála.) Hjalti greindi frá samskiptum við Verkfræðiþjónustuna ehf. um samning um verkfræðiþjónustu.
- Hjalti greindi frá samskiptum við iðnaðarráðuneytið vegna málefna sem snúa að ferðaþjónustu og fyrirhuguðum fundi á Akureyri vegna málsins.
- Björn Ingi lagði til að bæjarráð mótmæli fyrirvaralausri lokun svæðisútvarpsstöðva RÚV. Var tillagan samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 18:05


