Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráð 451
451. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 16. febrúar 2009 kl. 16.00
Mættir voru Árni Þorvaldsson, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 32. fundur, 9. febrúar 2009.
Framkvæmdarstjóra tækni og umhverfissviðs falið að kortleggja þá staði þar sem ár og ágangur sjávar geti ógnað vegum, brúm og öðrum mannvirkjum í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 105. fundur, 11. febrúar 2009.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu byggingar- og skipulagsnefndar um hraðatakmarkandi aðgerðir, fjármagn tekið af óráðstöfuðu.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 191. fundur, 10. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 8. fundur, 11. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um styrk vegna íbúðar fyrir MS sjúklinga utan af landi
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 50.000.- Fjármagn tekið af óráðstöfuðu hjá Bæjarráði.
3. Ósk um styrk Sjónarhóll ráðgjafarstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra.
4. Ósk um að hluti lands að Hoffelli verði deiliskipulagt.
Árni Rúnar leggur til að hafin verði vinna við aðalskipulagsbreytingu á svæðinu í samræmi við tillögu landeigenda. Drög að deiliskipulagi og aðalskipulagi verði sent til umsagnar hjá Svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
5. Fyrirspurn vegna gömlu sundlaugarinnar
Vísað til bæjarstjóra
6. Innsend erindi
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 3. febrúar 2009, 23. landsþing sambandsins 13. mars n.k..
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 3. febrúar 2009, ráðstefna Ungt fólk og lýðræði á Akureyri 4. og 5. mar s n.k..
Til kynningar.
· Matvælastofnun, bréf dags. 3. febrúar 2009, nýting fisk- og humarúrgangs sem áburðar.
Til kynningar
· Sverrir Sch. Thorsteinsson, bréf dags. 8. febrúar 2009, safn Sverris og mál því tengt.
Vísað til bæjarstjóra
· Samgönguráðuneytið/Jöfnunarsjóður, bréf dags. 6. febrúar 2009, húsaleigubætur.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 9. febrúar 2009, umsögn vegna aðalskipulagsbreytinga.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Flugmálastjórn, bréf dags. 9. febrúar 2009, umsögn vegna aðalskipulagsbreytingar – vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 10. febrúar 2009, aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 13. mars 2009.
Samþykkt að bæjarstjóri fari með umboðið á fundinum.
7. Önnur mál
· Hjalti greindi frá fyrirhugaðri heimsókn Landsnets þar sem rætt verði um orkuþörf og orkuflutning til staðarins. Bæjarstjóra falið að undirbúa fund með Landsneti.
· Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við rekstraraðila við Jökulsárlón og stjórnarmann í sameignarfélaginu Felli. Kom fram að hugmyndir séu uppi um að fara í skipulagsvinnu fyrir svæðið. Bæjarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
„Bæjarráð fagnar því ef ráðist verði í að skipuleggja svæðið við Jökulsárlón. Mikill fjöldi ferðamanna kemur á svæðið á ári hverju og kallar á aukna uppbyggingu á aðstöðu. Bæjarráð undirstrikar að Jökulsárlón er einn af hornsteinum þeirrar jákvæðu þróunar sem hefur verið í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu á síðustu árum. Samfélagið í Sveitarfélaginu Hornafirði hefur því ríka hagsmuna að gæta að áfram verði haldið í uppbyggingu við Jökulsárlón. Bæjarráð telur mikilvægt að skipulagsvinnan verði til þess að sætta mismunandi sjónarmið þeirra sem hagsmuna hafa að gæta á svæðinu, þ.e. rekstraraðila og Sameignarfélagsins. Bæjarráð lýsir sig reiðubúið að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að markmið með skipulagsvinnunni nái fram að ganga.“
· Haukur lagði fram fundargerð frá opnun tilboða í færanlegar kennslustofur, dags. 16. febrúar 2009. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Þingvaðs ehf.
· Reynir spurðist fyrir um framgang mála við Grjótbrú, vatnsbólið sem fyrirhugað er að nýta í tengslum við útflutningi á vatni. Haukur upplýsti að rannsóknaniðurstöður á efnainnihaldi og gerlafjölda lofuðu góðu og eins hefði fundist umtalsvert magn af vatni.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16.50


