Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 465
465. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 25. maí 2009 kl. 13:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Halldóra Bergljót Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundur með Fjarskiptafélagi Öræfinga
Á fundinn mættu Knútur Bruun og Ingólfur Bruun og gerðu grein fyrir ýmsum þáttum sem snúa að fyrirætlunum um öflugri tölvutengingar í Öræfum og vestasta hluta Suðursveitar. Ingólfur gerði grein fyrir mismunandi leiðum við gagnaflutning og hvaða leiðir væru tryggastar að hans mati og hvaða leiðir gæfu mesta flutningsgetu. Sagði hann að ljósleiðarinn hefði gríðarlega margt fram yfir koparkapla. Lagði hann einnig áherslu á mikilvægi góðra fjarskiptasamskipta í hinum dreifðu byggðum. Knútur greindi frá því að þegar 3ja fasa rafmagn var lagt í jörðu frá Reynivöllum og um Öræfasveit hafi einnig verið lagður ljósleiðari sem ekki er í notkun í dag. Sagði hann það vera mikilvægt byggðamál að koma á góðum fjarskiptum. Knútur sagði að allir bæir og fyrirtæki í Öræfum væru aðilar að Fjarskiptafélagi Öræfinga. Að lokum svöruðu þeir Ingólfur og Knútur fyrirspurnum bæjarráðsmanna. Hjalti sagði þá sem unnið hafa að þessu máli eiga hrós skilið fyrir þeirra framlag.
2. Fundur með útgerðaraðilum
Á fundinn mættu fulltrúar útvegsmanna í sveitarfélaginu þeir Gunnar Ásgeirsson, Ólafur Björn Þorbjörnsson, Óskar Guðmundsson, Arnar Ragnarsson, Ingólfur Ásgrímsson, Friðþór Harðarson, Aðalsteinn Ingólfsson, Unnsteinn Þráinsson, Grétar Vilbergsson, Ásgeir Gunnarsson, Hermann Stefánsson. Fram komu í máli fulltrúanna miklar áhyggjur af stöðu útvegsins ef fyrningaleiðin verður farin. Sögðu þeir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um fyrningaleið þegar vera farna að hafa neikvæð áhrif á greinina, allar fjárfestingar hafi stöðvast og mikil óvissa um framtíðina. Bentu þeir á að sú hagræðing sem orðið hafi í sjávarútvegi hafi verið greidd af þeim sem enn eru í greininni og sætu þeir nú uppi með miklar skuldir þess vegna. Bæjarstjóri upplýsti að hann hafi óskað eftir fundi með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna þessa máls.
3. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjaraðar, 51. fundur 18. maí 2009.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir spurði um stöðu á verkefni í tengslum við skapandi atvinnugreinar, orkumál og sauðfjárveikivarnir.
Hjalti svaraði fyrirspurnum.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 102. fundur 20. maí 2009.
Halldóra óskaði eftir upplýsingum stöðu þjónustusamnings og rekstrarstöðu HSSA. Einnig spurði hún um lífeyrisskuldbindingar stofnunarinnar, hvort þessar skuldbindingar væru hjá ríkinu
Hjalti svaraði fyrirspurnum og túlkaði orð í ársreikningi þannig að skuldbindingarnar tilheyrðu ríkinu.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningasjóður Skjólgarðs, 47. fundur 20. maí 2009.
Reynir vakti máls á hlutverki ríkisins í kaupum á stofnbúnaði og mikilvægi þess að kynna gjafir ef gefandi er samþykkur því.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 14. fundur 19. maí 2009.
Til kynningar.
4. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009
Kynntar breyttar forsendur á fjárhagsáætlun. Farið yfir tekjuáætlun, framkvæmdir og rekstur. Áframhaldandi vinnu er vísað til starfsmanna.
5. Ársreikningar HSSA 2008
Kom fram að afgangur er af rekstri stofnunarinnar. Bæjarráð vísar ársreikningi HSSA til samþykktar í Bæjarstjórn Hornafjarðar.
6. Ávöxtun handbærs fjár sveitarfélagsins
Endurskoðendur óskuðu eftir formlegri stefnu sveitarfélagsins um ávöxtun handbærs fjár sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að handbært fé sveitarfélagsins verði geymt á bankabók.
7. Endurskoðun á reglum um flutnings- og húsaleigustyrki starfsmanna sveitarfélagsins
Rætt um kosti þess og galla að fella niður þessar reglur. Halldóra Bergljót lagði til að styrkirnir verði lagðir niður. Reynir tók undir orð Halldóru um að ákjósanlegt væri að endurskoða þessar reglur en taldi að það væri of seint þetta vorið enda væri búið að kynna þær fyrir starfsmönnum sem væru að hugsa um að koma til starfa. Árni lagði til að málinu yrði vísað til fjárhagsáætlunargerðar árið 2010. Samþykkt með tveimur atkvæðum, Halldóra situr hjá.
8. Drög að nýrri samþykkt um umgengni utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Framlögð drög samþykkt. Starfsmanni falið að kynna málið vel fyrir íbúum og fyrirtækjum.
9. Drög að samningi um gerð kynningarmyndbands um samfélag og ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls
Samþykkt.
10. Málefni Golfklúbbs Hornafjarðar
Hjalti greindi frá fundi með fulltrúum golfklúbbsins fyrri skömmu. Kom fram að rekstrarstaða klúbbsins er erfið, einkum vegna breytinga á lánum í erlendri mynt. Bæjarráð samþykkir að greiða upp umsaminn styrk sveitarfélagsins vegna framkvæmda á vellinu þannig að hægt verði að greiða upp stærsta hluta af lánum klúbbsins. Bæjarráð óskar eftir tillögum frá starfsmönnum um hvernig sveitarfélagið getur stutt við rekstur klúbbsins.
11. Biðlistar leikskóla
Óskað var eftir yfirliti yfir biðlista á leikskóla sveitarfélagsins á síðasta fundi bæjarráðs. Kom fram að engir eru á biðlista eftir að komast að strax en komnar eru 18 umsóknir og fyrirspurnir um leikskólapláss fyrir næsta skólaár.
12. Ósk um umsagnir á útgáfu leyfa
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 14. maí 2009, tækifærisleyfi fyrir Sjómannadagsráð.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 18. maí 2009, umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar að Hólmi.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 18. maí 2009, umsókn um rekstrarleyfi til sölu veitinga að Hafnarbraut 2.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
13. Lóðarumsókn – Hafnarbraut 4
Haukur greindi frá málinu.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
14. Málefni fatlaðra
Stefán gerði grein fyrir ráðstefnu sem haldin var um flutning málefna fatlaðra yfir til sveitarfélaga. Fram kom að 19 mánuðir eru þar til yfirfærslan á sér stað ef allar áætlanir ganga eftir. Sagði hann mikilvægt að málið verði sett á dagskrá hjá sveitarfélaginu. Fræðslu- og félagssviði falið að leiða þá vinnu.
15. Tölvumál
Hjalti greindi frá samningum um tölvumál og viðskiptum tengdum tölvu- og upplýsingamálum. Vísað til starfsmanna til áframhaldandi vinnslu.
16. Innsend erindi
· SASS, bréf dags. 14. maí 2009, ársþing SASS á Höfn, 15. og 16. október 2009.
Til kynningar
· Eiríkur Hansson og Þórgunnur Torfadóttir f.h. Klakanna og Grunnskóla Hornafjarðar, þakkarbréf.
Bæjarráð þakkar bréfið, fagnar góðu gengi Klakanna og óskar þeim til hamingju með góðan árangur.
· Landskerfi bókasafna, bréf dags. 19. maí 2009, fundarboð á aðalfund 4. júní 2009.
Vísað til Menningarmiðstöðvar.
17. Önnur mál
· Stefán greindi frá samskiptum við verktaka við Hafnarskóla. Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu að verksamningi.
· Halldóra ræddi ástand á tannheilsu barna og óskaði eftir að hún verði könnuð með einhverjum hætti. Var samþykkt að vísa þessu til fræðslu- og félagssviðs.
Fundi slitið kl. 18:25


