Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 480
480. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 19. október 2009 kl.16:15.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 115. fundur, 14. október 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 198. fundur 13. október 2009 – óundirrituð fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 14. fundur, 14. október 2009, óundirrituð fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 91. fundur, 8. október 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, 2. október 2009 og áskorun fundarins til iðnaðarráðherra um styrki til orkusparandi aðgerða.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2010, rekstrarrammar – gögn kynnt á fundinum
Farið yfir rekstrarramma til stofnana sveitarfélagsins og þær forsendur sem þeir byggja á. Að lokinni yfirferð samþykkir bæjarráð að senda rekstrarramma út til forstöðumanna.
Haukur Ingi kynnti og fór yfir fyrstu drög að framkvæmdaáætlun 2010 og næstu ára þar á eftir.
Undir þessum lið var greint frá aukaframlagi Jöfnunarsjóðs, kr. 61.070.548, samkv. yfirliti sjóðsins. Einnig greint frá öðru framlagi sjóðsins að upphæð kr. 1.000.000.-
3. Tilboð í gervigasvöll – framhaldsumræða
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Rósabergs ehf. og ganga til viðræðna við tilbjóðanda.
4. Drög að endurskoðuðum reglum um umhverfisviðurkenningu
Bæjarráð staðfestir nýjar reglur um umhverfisviðurkenningu, sem áður hefur verið samþykkt í umhverfisnefnd.
5. Endurskoðun jarða- og ábúðarlaga – ósk um athugasemdir og tillögur
Vísað til bæjarstjóra að svara erindinu.
6. HAUST, bréf dags. 9. október 2009, aðalfundarboð og ósk um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins á fundinn.
Samþykkt að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundi HAUST verði Sigurlaug Gissurardóttir sem aðalmaður og Haukur Ingi Einarsson til vara.
7. Innsend erindi
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda og sjónskerta, bréf dags. 1. október 2009, ráðgjafi í málefnum daufblindra.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 2. október 2009, varðar notendahugbúnað í skólum.
Vísað til skólanefndar.
· Brunabót, bréf dags. 12. október 2009, ágóðahlutagreiðsla 2009.
Greiðsla BÍ til sveitarfélagsins fyrir árið 2009 er kr. 4.824.000.-
8. Önnur mál
· Hjalti greindi frá stöðunni í málefnum Fjarskiptafélags Öræfinga og Fjarska ehf. vegna áætlana um að tengja samfélagið við ljósleiðara.
· Hjalti greindi frá ábendingum sem honum hafa borist um flutning á sauðfé vestur yfir Hornafjarðarfljót. Bæjarráð samþykkir að vísa þessum ábendingum til atvinnumálanefndar.
Fundi slitið kl. 17:55


