Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 225
225. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 09. október 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Almannavarnarnefnd Hornafjarðar 24. fundur 1. október 2003
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 53. fundur 30. september 2003
Fram kom að biðlistar eru eftir íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar
Ásta afhenti endurskoðaða launaáætlun fyrir bæjarsjóð og fyrstu drög að endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir 2003. Eftir umræður um drögin var umfjöllun og afgreiðslu á endurskoðaðri fjárhagsáætlun vísað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Erindi Sporthallarinnar
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að svara erindinu í samræmi við umræður um málið á fundinum og niðurstöðu hans þar sem ósk eigenda Sporthallarinnar er hafnað.
4. Lóðarleiga
Fram kom að nú er unnið eftir fleiri en tveimur formum á lóðarleigusamningum. Stefnt er að því að hafa aðeins eitt form og jafna þannig aðstöðu lóðarleigjenda og einfalda um leið alla meðferð samninganna. Samþykkt að segja upp öllum gildandi lóðarleigsamningum og taka up nýtt form sem gildir fyrir alla lóðarleigu. Starfsmönnum falið að útfæra uppsögnina og að nýr samningur taki gildi eigi síðar en frá og með ársbyrjun 2005. Reynir varaði við því að lóðarleiga hækki mikið frá því sem nú er.
5. Vinabæjarsamstarf við Sisimiut á Grænlandi
Halldóra greindi frá heimsókn til Sisimiut. Lagt hefur verið til að skrifstofur sveitarfélaganna í Sisimiut og á Hornafirði verði aðilum í atvinnulífi, stofnunum o.fl. innan handar við samskipti. Bæjarráð leggur til að tekið verði upp vinabæjarsamband við Sisimiut sem verði á öðrum grunni en samstarf við aðra vinarbæi.
6. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 26. september 2003 v/heimildarákvæða 4. og 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Samþykkt að fara yfir gildandi reglur um afslátt og niðurfellingu fasteignagjalda, endurskoða þær og samræma.
• Bréf(tölvupóstur) dags. 23. september 2003 frá Ferðamálafélagi Austur-Skaftafellssýslu um hugsanlega samvinnu við bæjaryfirvöld um framþróun í ferðamálum.
Samþykkt að koma á fundi með forsvarsmönnum ferðamálasamtaka í sveitarfélaginu.
• Bréf frá Íslenska lögregluforlaginu ehf. v/fræðslu- og rannsóknarverkefnisins í tengslum við lífsleikni.
Erindinu vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.
• Bréf frá Verðbréfastofunni dags. 30. september 2003 varðandi fjármögnun.
• Bréf frá landbúnaðarráðuneyti dags. 3. október 2003 v/búfjáreftirlits.
7. Önnur mál
• Afhending viðskiptasamninga, Inga Jóna fór yfir málið. Óskað hefur verið eftir því að viðskiptsamningur verði afhentur. Að gefnu áliti Regula Lögmannsstofu leggur bæjarráð til að samningurinn verði afhentur.
• Kynnt tilboð frá Ferli ehf. í sérstakan hugbúnað fyrir sveitarfélög, Íbúasýn
• Kynnt tölvukaup í Frumkvöðlasetri. Samþykkt að setrið hafi heimild til að kaupa tölvur í gegnum samning sveitarfélagsins við HP-finance.
• Bæjarráð færir aðstandendum sýningarinnar "Með allt á hreinu" góðar óskir.
• Kynnt umsókn HP-sona um lóðina Álaugarveg 10 til afnota fyrir þjónustu sína. Samþykkt að leigja umsækjendum tímabundið lóðina (geymslulóð) fyrir starfsemi fyrirtækisins. Leigjendur keyra sjálfir fyllingarefni í lóðina á eigin kostnað og ekki fylgir leigunni byggingarréttur.
Fundi slitið kl. 12:15


