Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 496
496. fundur
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að tekið verði sem sérliður á dagskrá tilboð í framkvæmdir við gervigrasvöll og byggingu varnargarðs í Sílavík. Tekið sem 5. liður.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornfjarðar, 122. fundur, 10. mars 2010.
Reynir spurði um nýja veglínu yfir Skeiðarársand og hvort útlit sé fyrir að farið verði í þá framkvæmd. Einnig rætt um hvernig nýr vegur samrýmist gildandi aðalskipulagi. Samþykkt að starfsmenn tækni- og umhverfissviðs ræði þessi mál við starfsmenn Vegagerðarinnar. Reynir spurði um byggingarleyfi, sbr. 9. lið í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar. Einnig ræddi hann höfnun á umsókn um byggingu gróðurhúss í Stafafelli og spurði hvað hafi ráðið afstöðu nefndarinnar. Árni og Haukur Ingi gerðu grein fyrir afgreiðslu nefndarinnar. Björn Ingi benti á villandi orðalag í 7. lið byggingar- og skipulagsnefndar. Þarna ætti að standa að um væri að ræða heimild til að reisa varnargarð í Sílavík annars vegar og gera gervigrasvöll hins vegar.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 122. fundur, 10. mars 2010.
Hjalti gerði grein fyrir leigu á löndunarkrana til Breiðdalsvíkur. Þá sagði hann björgunarlaunin, sbr. 2. lið, vera í vinnslu hjá lögmanni sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2. Útboð viðbyggingar við Lönguhóla
Eftir umræður um útboðið, tímasetningar á útboði og verklok o.fl. atriði samþykkti
bæjarráð að auglýst verði útboð á viðbyggingu við Lönguhóla í samræmi við útboðsgögn eftir breytingar á þeim.
3. Markaðsstofa Suðurlands
Hjalti fór yfir málið og greindi frá helstu þáttum fyrirhugaðs samkomulags og hvaða breytingar hann vildi sjá áður en það verður undirritað. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti þjónustusamning við Markaðsstofu Suðurlands. Samþykktin er háð því skilyrði að jafnframt verði gert samkomulag um rekstur upplýsingamiðstöðvar í sveitarfélaginu.
4. Ósk um umsagnir á frumvörpum til laga
· til skipulagslaga, 425. mál, http://www.althingi.is/altext/138/s/0742.html
· til laga um mannvirki, 426. mál, http://www.althingi.is/altext/138/s/0743.html
· til laga um brunavarnir (Byggingarstofnun), 427. mál, http://www.althingi.is/altext/138/s/0744.html
Þeir sem óska eftir að fá útprentun á frumvörpunum hafi samband við skrifstofu.
Fram kom sú skoðun að með breytingum á skipulagslögum væri verið að færa skipulagsvald af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar. Bæjarráð óskar eftir að fá til skoðunar álit Sambands íslenskra sveitarfélaga um framangreind frumvörp.
5. Tilboð í gervigrasvöll og varnargarð í Sílavík
Haukur Ingi greindi frá tilboði í alla jarðvinnu sem eftir er við gervigrasvöll, lagningu á hellum umhverfis völlinn og því sem þeim frágangi tilheyrir, flutningi á fargi á gervigrasvelli í Sílavík og byggingu varnargarðs þar. Tilboð Rósabergs, eina tilbjóðanda, hljóðar upp á kr. 16.382.500. Samþykkt að ganga til samninga við tilbjóðanda.
Innsend erindi
· Náttúrustofa Vesturlands, bréf dags. 10. desember 2009, greinargerð um umhverfisvottun Íslands, http://www.nsv.is/NSV_skyrslur/Umhverfisvottad_Island.pdf.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 15. febrúar 2010, aðalfundur 2010, 26. mars nk. á Nordica hótelinu, kl. 15:00.
Bæjarstjóra falið að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 2. mars. 2010, Dagur umhverfisins 2010.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Heilsuvernd ehf. , ódagsett bréf, Öryggi ungs starfsfólks á vinnustað.
Vísað til starfsmanna sveitarfélagsins.
6. Önnur mál
· Reynir ræddi stöðu steypustöðvar við innkeyrsluna í bæinn. Haukur Ingi greindi frá væntanlegum flutningi steypustöðvarinnar af núverandi svæði, að það muni gerast í næsta mánuði.
· Hjalti greindi frá samskiptum við skólastjóra Hólaskóla og sveitarstjórann í Skagafirði og áhuga um samstarf um uppbyggingu þekkingarstarfs. Bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita viljayfirlýsingu við framangreinda aðila.
Fundi slitið kl. 17:35


