Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 502
502. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 11. maí 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Anna Guðmunda Andrésdóttir MPA nemi í starfsnámi.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 124. fundur, 30. apríl 2010.
Björn Ingi spurði um 1. lið á dagskrá er varðar ákvörðun launa vegna björgunar Axls m/b.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar , 125. fundur, 5. maí 2010.
Fundargerð samþykkt.
2. Byggingafulltrúaembættið
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og hvernig hann sá fyrir sér skipulag á tækni- og umhverfissviði. Hjalti gerði grein fyrir hæfniskröfum fyrir byggingarfulltrúa.
Bæjarráð tekur málið aftur fyrir næsta fimmtudag.
3. Málefni fatlaðra
Hjalti kynnti nýjustu upplýsingar um stöðu um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Bæjarráð samþykkir að halda sig við fyrri ákvörðun um rekstur málaflokksins.
4. Rekstraryfirlit 31. mars 2010
Til kynningar.
5. Eyjar í Hornafirði
Haukur Ingi fór yfir málið og greindi frá hvaða eyjar í Firðinum tilheyra sveitarfélaginu. Reynir lagði til að farið væri betur yfir eignarhaldið og það fengið staðfest hvaða eyjar sveitarfélagið ætti. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
6. Ósk um styrk til fornleifarannsókna að Hólmi
Vísað til bæjarstjóra.
7. Ósk um styrk til SÁÁ í formi kaupa á álfinum
Vísað til bæjarstjóra.
8. Innsend erindi
· Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 28. apríl 2010, afrit af kæru til lögreglustjórans á Eskifirði vegna framkvæmda á Hofi í Öræfum og afrit af gagnkæru Önnu Sigríðar Jóhannsdóttur og Knúts Bruun til sama, dags. 2. maí s.l., ásamt staðfestingarbréfum Ara Magnússonar, Þorláks Magnússonar, Arnar Bergssonar og fl. Einnig bréf Húsafriðunarnefndar dags 3. maí 2010 um sama mál.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands, tölvubréf dags. 3. maí 2010, boð á ársfund Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands.
Kom fram að fundurinn frestast fram á haust.
· Félag áhugafólks um heimafóðurverkefnið, tölvubréf dags. 4. maí 2010, eftirfylgni við verkefnið.
Til kynningar.
· Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, bréf dags. 6. maí 2010, tilkynning um ráðstöfun styrktarsjóðs EBÍ.
Til kynningar.
9. Önnur mál
· Björn Ingi ræddi um þörf á tengingu inn á stíg meðfram strandlengju.
· Greint frá því að útboðsgögn vegna framkvæmda í Sindrabæ séu nú á lokastigi. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út í þrennu lagi, smíðavinnu og efni, efni og vinna við raflagnir, efni og vinna við málningu. Verkið verði unnið undir stjórn starfsmanna sveitarfélagsins.
· Rætt um málningu á heitum pottum í sundlauginni. Óskað eftir kostnaði við málningu og flísalagnir.
· Hjalti greindi frá fundi með landeigendum að Felli frá því 10. maí 2010 og kynnti fyrstu hugmyndir að deiliskipulagi fyrir Jökulsárlóni. Greindi einnig frá viðræðum við aðila sem áhugasamur er að hefja nýja starfsemi á Jökulsárlóni.
Fundi slitið kl. 17:10


