Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 503
503. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 20. maí 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Anna Guðmunda Andrésdóttir MPA nemi í starfsnámi.
Samþykkt að bæta inn á dagskrána samningi um friðun vegsvæðis..., 7. liður, umsókn um endurnýjun á rekstarleyfi ..., 8. liður og ósk um malbikun á húsagötu, 9. liður.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 203. fundur 9. mars, 204. fundur 13. apríl og 205. fundur 11. maí 2010.
Óskað eftir að fá upplýsingar um fjárhagsaðstoð það sem af er árinu 2010 miðað við árið 2009. Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 89. fundur, 11. maí 2010.
Hjalti gerði grein fyrir væntanlegu tilboði í íbúð á Sandbakka. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga í samræmi við tillögur bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 744. fundur 7. maí 2010.
Til kynningar.
2. Ársreikningar Hornafjarðarveitna 2009
Hjalti gerði grein fyrir niðurstöðunum og var ársreikningurinn samþykktur.
3. Byggingarfulltrúi
Staða byggingarfulltrúa var rædd. Lagt var til að framlengja samning við Verkfræðistofuna um 6-12 mánuði sem var samþykkt.
4. Gagnaver Glacier Guard
Hjalti gerði grein fyrir málinu og lagði til að sveitarfélagið færi í undirbúningsvinnu sem fyrst. Hjalti leggur til að honum verði falið að ræða við aðila sem hafa þekkingu á gerð kynningarefnis og fái kostnaðaráætlun. Var samþykkt.
5. Stöðuleyfi við Jökulsárlón
Bæjarráð samþykkir að veita stöðuleyfi til fjögurra mánaða, sbr. bréf umsækjanda dagsett 17.05. 2010. Samþykkt með fyrirvara um endanlega staðsetningu á hjólhýsi og samþykki allra landeigenda á svæðinu.
Bæjarráð ítrekar þá afstöðu sína að það deiliskipulag sem nú er í vinnslu skuli vera rammi um framtíðaruppbyggingu og starfsemi við Jökulsárlón. Mikilvægt er að mannvirki og þjónustusvæði við Jökulsárlón stækki umtalsvert og þjóni þannig þörfum þeirra tugþúsunda gesta sem sækja svæðið heim árlega.
6. Ósk frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um styrk til útgáfu úrvals 100 örnefna í tilefni af aldarafmæli skipulegrar söfnunar örnefna á landinu
Málinu vísað til bæjarstjóra.
7. Samningur um friðun vegsvæðis fyrir ágangi búfjár í Sveitarfélaginu Hornafirði
Með samningnum er gert ráð fyrir að Hringvegur (1) frá Almannaskarðsgöngum að Hornafjarðarfljóti og Hafnarvegur (99) frá Hringvegi að Höfn við ristarhlið verði friðaður fyrir ágangi búfjár allt árið. Mörk svæðisins verða endurskoðuð þegar Hringvegi verður breytt um Hornafjarðarfljót. Bæjarráð samþykkir samning við Vegagerðina um friðun vegsvæðis á Hringvegi 1 frá Almannaskarðsgöngum að Hornafjarðarfljóti og Hafnarvegi (99) og felur bæjarstjóra að undirrita hann. Staðgengli bæjarstjóra falið að undirrita samning.
8. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi til reksturs Ferðaþjónustu bænda Brunnhól
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við ofangreinda umsókn.
9. Ósk um malbikun á húsagötu frá Sandbakkavegi meðfram lóð Litlubrúar, erindi forsvarsmanna fyrirtækja í Miðbæ, sbr. bréf dags. 20. maí 2010
Bæjarráð hafnar erindinu.
10. Innsend erindi
· Landskerfi bókasafna, bréf dags. 10. maí 2010, tilkynning um aðalfund.
Til kynningar
· Vatnajökulsþjóðgarður, bréf dags. 12. maí 2010, stjórnunar- og verndaráætlun, bréf og auglýsing. Slóð https://sites.google.com/a/alta.is/vj/, https://sites.google.com/a/alta.is/vj/12-umhverfisskyrsla.
Vísað til bæjarstjórnar
11. Önnur mál
· Hjalti gerði grein fyrir samtali við eiganda Fjarðar um urðunarstað í Lóni.
· Hjalti greindi frá fundi með forsvarsmönnum hönnuða sem eru með aðsetur í Miklagarði. Á þeim fundi var rætt um viðbótarhúsnæði yfir sumartímann fyrir ýmsa starfsemi hönnuða sem þar starfa og annarra sem tengjast þeirri vinnu. Er einkum litið til lauss rýmis í ráðhúsi. Bæjarráð samþykkir að nýta megi þetta húsnæði í sumar á meðan endurbætur innan húss eru ekki hafnar og með skilyrði um viðeigandi umgengni.
· Greint frá því að Kristín Guðmundsdóttir í Hafnarnesi óski eftir að sveitarfélagið gefi vilyrði fyrir stækkun lóðar við gistiheimilið. Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Haukur Ingi gerir grein fyrir umsókn um byggingarleyfi bílskúra við Silfurbraut 7 c og 7 b. Málinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
Fundi slitið kl. 18:00


