Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 504
504. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 7. júní 2010 kl. 14:30.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Anna Guðmunda Andrésdóttir MPA nemi í starfsnámi.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 111. fundur 20. maí 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 19. fundur 17. maí 2010.
Rætt um 3. lið á dagskrá nefndarinnar, ljósalistaverk á Vatnstanknum.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 126. fundur 26. maí 2010.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um fjölda grunnskólanema sem lokið hafa framhaldsáfanga í FAS á sl. 2 skólaárum.
Fundargerð samþykkt.
2. Tilboð í endurbætur í Sindrabæ
Eftirfarandi tilboð bárust í endurbætur á Sindrabæ:
Þingvað ehf.
Tilboð í alla verkþætti: Kr. 19.014.770.-
H. Christensen ehf.
Tilboð í trésmíði og múrverk, hitalagnir og ofna, dúkalögn: Kr. 10.297.677.-
Rafhorn ehf.
Tilboð í raflagnir: Kr. 4.198.468.-
Martölvan ehf.
Tilboð í raflagnir: Kr. 4.771.282.-
Kostnaðaráætlun fyrir allt verkið er kr. 18.731.085.-
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við H. Christensen ehf. og Rafhorn ehf.
Björn Ingi benti á að tilboð vanti í tvo verkþætti, þar sem í samantekt um lægstu verkþætti er byggt á kostnaðaráætlun fyrir þessa tvo þætti en ekki tilboði.
3. Uppgjör vegna vinnu Verkís hf. við sundlaugarbyggingu
Haukur Ingi gerði grein fyrir tilurð málsins. Fjallaði hann m.a. um ábyrgð hönnuða. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
4. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir Nýpugarða
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framangreint rekstrarleyfi.
5. Önnur mál
· Á 504 fundi bæjarráðs var óskað eftir upplýsingum um greidda fjárhagsaðstoð félagsþjónustunnar á fyrstu mánuðum áranna 2009 og 2010. Sama upphæð er á fjárhagsáætlun beggja ára, kr. 7.000.000. janúar – maí 2009 höfðu verið greidd 39,28% af áætlun ársins og sömu mánuði 2010 35,41%.
· Bæjarráð samþykkir sölu á tveimur eftirtöldum íbúðum: Sandbakka 1 0203 218-1172 og Sandbakka 1 0201 218-1170.
Fundi slitið kl. 15:45


