Fundargerð bæjarráðs 552
552. fundur
552. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,18. júlí 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Kristján Sigurður Guðnason varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201107017 - Fundargerð 788. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um stöðu kjaraviðræðna. Upplýst að búið er að semja við allar starfsstéttir nema leikskólakennara. Umræður sköpuðust um bakhóp vegna málefna fatlaðs fólks, samþykkt að fjalla nánar um málefni fatlaðs fólks á fundi í haust.
Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 2. |
201107011 - Viðbrögð vegna rofs á Hringvegi við Múlakvísl |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir svörum ferðaþjónustuaðila við fyrirspurn hans um áætlað tjón af völdum rofs á Hringvegi. Kom fram að tjónið er talsvert en tekist hafi að afstýra því að miklu leyti með ferjun yfir Múlakvísl og stuttum verktíma við gerð nýrrar brúar. Björn Ingi fjallaði um mikilvægi þess að eiga nákvæmari gögn um ferðaþjónustu á svæðinu, Umræður sköpuðust um mikilvægi þess að vanda vel til fyrstu viðbragða við vegrof.
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi:
Bæjarráð Hornafjarðar þakkar Vegagerðinni fyrir vasklega framgöngu í smíði brúar yfir Múlakvísl. Jafnframt þakkar bæjarráð bílaleigum, björgunarsveitum, Vegagerðinni og fleiri aðilum fyrir vinnu þeirra við ferjun bíla og manna yfir Múlakvísl. Ljóst er að allar aðgerðir sem ráðist var í leiddu til þess að tjón ferðaþjónustufyrirtækja var minna en óttast var í fyrstu.
Samt sem áður er ljóst að ferðaþjónustufyrirtæki urðu af talsverðum tekjum. Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru yfir 20 gististaðir, yfir 10 veitingastaðir og yfir 10 fyrirtæki sem gera út á afþreyingu fyrir ferðafólk. Að auki reiða verslanir og önnur þjónustufyrirtæki sig mjög á umferð ferðamanna um svæðið. Hringvegurinn er lífæð þessara fyrirtækja og lokun hans á háannatíma er fljót að leiða til tugmiljónatekjups. Vísar bæjaráð í minnisblað Háskólaseturs Háskóla Íslands þar um. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma því til leiðar að unnin verði samantekt um rauntjón ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu vegna rofs hringvegar um Múlakvísl.
Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að unnin verði viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs rofs á hringveginum í framtíðinni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þeirri ábendingu á framfæri við stjórnvöld. |
| |
|
|
| 3. |
201106063 - Nýheimar - minnisblað til mennta, og menningarmálaráðherra |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með Svandísi Svavarsdóttir, umhverfisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra um málið. Björn Ingi ræddi um minnisblaðið, spurðist hann fyrir um hver aðkoma sveitarfélagsins yrði að verkefninu. Hjalti fjallaði um aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu. |
| |
|
|
| 4. |
201107007 - Staða og framtíð háskólaseturs á Hornafirði |
|
|
Lagt fram drög að bréfi til mennta- og menningarmálaráðherra. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda erindið frá sér. |
| |
|
|
| 5. |
201107006 - Staða og framtíð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Hornafirði |
|
|
Lagðir fram minnispunktar frá fundi bæjarstjóra og starfsmanns Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Hornafirði. Kom fram að á fundinum hafi verið rætt mikilvægi þess að unnin verði verkefni sem tengjast beint atvinnulífi og samfélagi á svæðinu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja því eftir. Bæjarráð vill koma því á framfæri að það telji grundvallaratriði að stofnanir sem starfi í Nýheimum séu virkar í samfélagsþróun og taki frumkvæði í málum sem því tengjast. |
| |
|
|
| 6. |
201107005 - Staða og framtíð Þekkingarnets Austurlands á Hornafirði |
|
|
Löðg fram drög að bréfi til mennta- og menningarmálaráðherra. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda erindið frá sér. |
| |
|
|
| 7. |
201107009 - Staða og framtíð Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
Rætt um ráðningu fjármálastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, framtíð gestastofu á Höfn og stöðu Vatnajökulsþjóðgarðs í héraðinu. Bæjarráð telur mikilvægt að komið verði á fundi með stjórn þjóðgarðsins sem fyrst. Bæjaryfirvöld á Hornafirði telja mikilvægt að sýnileiki garðsins á svæðinu verði aukinn með ráðningu starfsmanna og opnun gestastofu á Höfn sem allra fyrst. Jafnframt ítrekar bæjarráð þá skoðun sína að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs eigi hvergi betur heima en í Sveitarfélaginu Hornafirði enda ljóst að fá svæði á landinu, ef nokkur, leggi meiri áherslu á friðlýst svæði og ferðaþjónustu sem þeim tengjast. |
| |
|
|
| 8. |
200809009 - Náttúrustofa Suðausturlands |
|
|
Lögð fram drög að bréfi til umhverfisráðherra. Bæjarstjóra falið að ræða við sveitarstjóra Skaftárhrepps um málið. |
| |
|
|
| 9. |
200907011 - Framlenging samnings við Verkfræðiþjónustuna ehf. |
|
|
Umræður skopuðust um samninginn. Björn Ingi taldi eðlilegra að Verkfræðiþjónustan hafi starfsaðstöðu utan Ráðhússins. Umræður sköpuðust um staðsetningu Verkfræðiþjónustunnar, starfsmenn gerðu grein fyrir samskiptum milli framkvæmdasviðs og Verkfræðiþjónustunnar, rætt var um mikilvægi þess að setja ákvæði um aðstöðusköpun Verkfræðiþjónustunnar í Ráðhúsinu í samninginn. Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn um tvö ár með þeim breytingatillögum sem fram komu á fundinum. |
| |
|
|
| 10. |
201107019 - Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis v. lokahófs Kiwanisþings á Höfn 29. sept. 2011 |
|
|
Engar athugasemdir. |
| |
|
|
| 11. |
201107022 - Húsnæðismál í Öræfum - gert grein fyrir málinu á fundinum |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi um málið. Kom fram að þörf er á uppbyggingu íbúða á svæðinu. Umræður sköpuðust um uppbyggingu íbúðabyggðar á einkalandi. |
| |
|
|
| 12. |
201103020 - Niðurstöður díoxínmælinga í grennd við sorpbrennslur |
|
|
Kom fram að niðurstöður mælinga í jarðvegi í Svínafelli sýna að magn er undir viðmiðunarmörkum. |
| |
|
|
| 13. |
201107018 - Upplýsingar um fasteignamat 2012 |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
| |
|
|
| 14. |
201107020 - Tilkynning um úthlutun úr Styrktarsjóður EBÍ og tilk. um aðalfund fulltrúaráðs 2011 |
|
|
Lagt til að Haukur Ingi Einarsson vera fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi fulltrúaráðsins. Bæjarráð samþykkir tillöguna. Málið að öðru leiti til kynningar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45