Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 231
231. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 27. nóvember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Skólanefnd Hornafjarðar 55. fundur 19. nóvember 2003.
Fundargerð samþykkt.
2. Forstöðumenn - viðtöl
Eftirfarandi forstöðumenn hittu bæjarráð og fóru yfir stöðu stofnana sinna :
Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Hafnarskóla, Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri á Krakkakoti, Jóhann Moravek skólastjóri Tónskólans, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla og Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður
Menningar-miðstöðvar
3. Fjárhagsáætlun 2004
Bæjarráð fór yfir fjárhagsáætlun 2004. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2004 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Ósk um niðurfellingu reiknings v. malbikunar
• Bréf Björgunarfélags Hornafjarðar dags. 17. nóvember 2003.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að semja við Björgunarfélagið um málið.
5. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 17. nóv. v. styrks til Jöklasýningar.
Til kynningar.
• Bréf Skipulagsstofnunar til Vegagerðarinnar dags. 12. nóv. 2003 v/jarðgangna undir Almannaskarð.
Til kynningar.
Helgi Már gerði grein fyrir breytingum á tengivegi út á Stokksnes og frágangi á efnistöku í Friðsæld . Engar athugasemdir
6. Önnur mál
Skinney – Þinganes bréf dags. 20. nóv 2003 þar sem fyrirtækið óskar eftir leyfi bæjarstjórnar til að bora eftir sjó
Til kynningar.
Bréf frá Slysavarnarfélaginu Kára í Öræfum dags. 24. nóv. 2003 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið geri langtíma leigusamning fyrir slökkvibifreið í húsnæði sem félagið hyggst reisa
Bæjarráð tekur jákvætt í að leigja aðstöðu fyrir slökkvibifreið í nýju húsnæði Slysavarnarfélagsins Kára en telur ekki fært miðað við núverandi stöðu sveitasjóðs að greiða 10 ára leigu fyrirfram.
Dreift var dagskrá kynningarfundar fyrir sveitarstjórnarmenn um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem haldinn verður 8. desember nk. á Egilsstöðum
Fundi slitið kl. 15:00


