Fundargerð bæjarráðs 563
563. fundur
563. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 24. október 2011 og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1110004F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 16 |
|
|
Guðrún Ingimundardóttir spurði reynslu af varmadælum í íþróttahúsinu. Fram kom að reynslan bendi til að talsverð hagkvæmni náist með varmadælum en lengri tími þarf að líða til að segja nánar um það. Björn Ingi ræddi um atvinnu- og rannsóknasjóð og mikilvægi þess að fá álit sérfræðinga á því sviði sem umsóknirnar eru hverju sinni, eins og samþykktir kveða á um. Ásgerður ræddi um stefnumótun fyrir Hafnarvík Heppu.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1110007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 15 |
|
|
Rætt um gjaldskrá sundlaugar og hvort hækka eigi staka tíma í sundlaug meira en nefndin gerir tillögu um. Guðrún spurði hvort ekki væri rétt að hækka fæði fyrir lengda viðveru. Björn Ingi velti því upp hvort ekki væri eðlilegt að gjaldskrár hækki í samræmi við vísitölu eins og rekstrarrammar. Ásgerður rifjaði upp að við fjárhagsáætlun 2010 hafi verið ákveðið að fæðisgjöld ættu að standa undir kostnaði við innkaup. Hjalti velti því upp hvort taka eigi ákvörðun um að hækka gjaldskrár í leik-, grunn- og tónskóla á næsta skólaári. Því velt upp hvort tómstundakort ætti að eingöngu að ná til barna á grunnskólaaldri. Reynir sagði að mögulega væri ástæðan fyrir því að fjárhagsaðstoð hafi ekki hækkað á undanförnum árum sú að sveitarfélagið hafi tekið á sig talsvert mikinn kostnað með því að hækka ekki gjaldskrár.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1110006F - Almannavarnanefnd - 43 |
|
|
Björn Ingi gerði grein fyrir helstu umræðum á fundinum. Ásgerður spurðist fyrir um hvernig vinna við rýmingaráætlun gangi. Björn Ingi gerði grein fyrir framvindu málsins.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 - forstöðumenn mæta á fund bæjarráðs |
|
|
Forstöðumenn komu á fundinn í þessari röð:
Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs,
Maren Sveinbjörnsdóttir, málefni fatlaðs fólks,
Hulda Laxdal Hauksdóttir, Grunnskóla Hornafjarðar,
Margrét Ingólfsdóttir, Lönguhólum,
Snæfríður Svavarsdóttir, Krakkakoti,
Jóhann Morávek, Tónskóla Hornafjarðar,
Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri,
Pálína Þorsteinsdóttir, Grunnaskólanum í Hofgarði,
Borgþór Freysteinsson, eldvarnarfulltrúi,
Birgir Árnason, verkstjóri í Áhaldahúsi,
Árni Rúnar Þorvaldsson, Þrykkjunni. |
| |
|
|
| 5. |
201110054 - Gjaldskrár |
|
|
Bæjarráð er sammála um:
Að fæðisgjöld í leik- og grunnskólum standi undir innkaupum á hráefnum.
Að staðfesta tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um hækkun á gjaldskrá.
Að staðfesta tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um hækkun á tómstundakorti, með þeirri breytingu að það nái framvegis eingöngu til barna á grunnskólaaldri.
Að staðfesta tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um hækkun gjalds fyrir níunda tíma barns á leikskóla.
Að gjaldskrár í leikskóla- og lengdri viðveru hækki í samræmi við neysluvísitölu í byrjun næsta skólaárs. |
| |
|
|
| 6. |
201110019 - Tilboð rafhönnuða, verðkönnun, vegna endurbóta á Grunnskóla Hornafjarðar ? Heppuskóla |
|
|
Ásgerður Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið. Eitt tilboð barst. Tilboð frá Hind ehf hljóðaði upp á 7.070.- kr/kls. Tilboð samþykkt. Starfsmönnum falið að ljúka við gerð samninga. |
| |
|
|
| 7. |
201110040 - Boð um samstarf við Vox Naturae um ljósasýningu og Table of 20 |
|
|
Bæjarráð fagnar verkefninu en leggur áherslu að öll umgengni á umræddum stað taki mið af sérstöðu umhverfisins. |
| |
|
|
| 8. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.40