Haukur Ingi ráðinn sem framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Bæjarráð ákvað á síðasta fundi að ráða Hauk Inga Einarsson, hagfræðing, sem framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs. Haukur Ingi er fæddur 1980 og hefur starfað sem fyrirtækjaráðgjafi hjá Kaupþing banka. Um langt árabil bjó hann á Hornafirði og spilaði m.a. knattspyrnu fyrir Sindra við góðan orðstír. Unnusta Hauks er Berglind Steinþórsdóttir, frá Hala í Suðursveit.Þau eiga Tómas Nóa sem er 2ja ára og svo munu þau fjölga Hornfirðingum í mars því þá eiga þau von á barni. Berglind er að ljúka námi í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands. Foreldrar Hauks eru Einar Sveinn Ingólfsson og Ingibjörg Hauksdóttir sem eru flestum Hornfirðingum góðkunn.
Að sögn Hauks þá eru þau hjónin mjög spennt yfir því að flytja til Hornafjarðar enda margt jákvætt og skemmtilegt að gerast í sveitarfélaginu.





Skrifa athugasemd