Fréttir
Í leikskóla er gaman, með pabba
Það er gaman að púsla saman (úr myndasafni)

12.03.2008 Fréttir

Mótun fjölskyldustefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð



Nú fyrir stuttu skipaði bæjarstjórn stýrihóp sem móta á fjölskyldustefnu fyrir Sveitarfélagið Hornaförð. Stýrihópinn skipa Matthildur Ásmundardóttir, formaður hópsins, Gauti Árnason og Elín Magnúsdóttir. Hlutverk stýrihópsins er að móta fjölskyldustefnu fyrir 1. júní 2009. Hópurinn hefur tekið til starfa.
Markmið með gerð stefnunnar er fyrst og fremst að ná fram heildarsýn og markvissu starfi í málefnum fjölskyldunnar. Samkeppnishæfni sveitarfélagsins ræðst ekki síst af því hvort fjölskyldum sé boðið upp á sem best búsetuskilyrði. Mikilvægur áfangi á þeirri leið er metnaðarfull opinber þjónusta á vegum sveitarfélagsins. Markmið með mótun fjölskyldustefnu er að auka ánægju íbúa með bættri þjónustu. Vert er að skoða örlítið skilgreiningu á fjölskyldunni í upphafi þessarar vinnu:
?Fjölskyldan er hópur einstaklinga sem á sameiginlegt heimili þar sem þeir deila tómstundum, hvíld, tilfinningum, efnahag, ábyrgð og verkefnum. Meðlimir eru oftast fullorðnar manneskjur af báðum kynjum eða einstaklingur, ásamt barni eða börnum (þeirra). Þeir eru skuldbundnir hver öðrum í siðferðilegri gagnkvæmri hollustu.?
Sett verður upp svæði á nýrri heimasíðu sveitarfélagsins í tengslum við vinnu að mótun fjölskyldustefnu. Síðan mun vonandi verða tekin í notkun í apríl. Þar gefst fólki kostur á að setja inn athugasemdir og ábendingar til stýrihópsins. Þar mun stýrihópurinn einnig greina frá framgangi stefnumótunarinnar eftir þörfum. Mikilvægt er að gott samstarf verði milli stýrihópsins annars vegar og hagsmunasamtaka, vinnustaða, skóla, fjölskyldna, íþróttafélaga, nefnda og ráða sveitarfélagsins hins vegar. Stefnumótun sem þessari tengjast allir íbúar sveitarfélagsins og vonum við að fram komi góðar hugmyndir frá sem flestum. Mikilvægt er að fá fram sjónarmið sem flestra barna, foreldra, eldri borgara, erlendra íbúa eða allra þeirra sem hafa eitthvað fram að færa.
Hægt er að senda tölvupóst á eftirtalda aðila til að koma ábendingum til skila:
matthildur77@simnet.is
gauti@hornafjordur.is
elin.magnusdottir@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica