Fréttir
Leirusvadi
Leirusvadi
Séð yfir Leirusvæðið

25.08.2008 Fréttir

Undirbúningur einbýlishúsalóða á Leirusvæði

Sveitarfélagið er að hefja undirbúning lóða á Leirusvæði. Fyrsti áfangi miðar að því að gera lóðir við Fákaleiru 1, 3, 5, 5A, 7, 9, 11, 13, Álaleiru 8, 10, 12, 14, Hagaleiru 8, 8A, 10 og 10A tilbúnar til úthlutunar. Lóðirnar sem eru stórar einbýlishúsalóðir eru á skemmtilegum stað í sveitarfélaginu. Lóðirnar eru nálægt Sílavík þar sem stutt er í fjölskrúðugt fuglalíf, eins er heillandi að hafa skógin í Hrossabitahaga í næsta nágrenni. Stutt er í alla almenna þjónustu svo sem skólahúsnæði, íþróttasvæði, matvöruverslun og aðra almenna þjónustu.

Til að gera lóðirnar byggingarhæfar þarf að jarðvegsskipta fyrir nýjum götum og hækka landið í rétta hæð ásamt því að setja farg á byggingarlóðirnar svo byggingarreitir nái að síga og jafna sig áður en hús rísa á lóðunum. Sveitarfélagið er að undirbúa útboðsgögn fyrir þessa framkvæmd og verða þau tilbúin á þriðjudaginn n.k. áætluð verklok eru í lok nóvember.

Áhugasamir aðilar um lóðir er bent á að hafa samband við tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar ef spurningar vakna um lóðirnar.

Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissvið.

Tengt efni:

Deiliskipulag


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica