Viðhald á Hrollaugsstöðum
Hans vinnur að viðhaldi í Suðursveit
Hans Christianssen vinnur nú að viðhaldi félagsheimilisins Hrollaugsstaða sem kenndur er við Hrollaug Rögnvaldsson landnámsmann. Skipt verður út slitinni klæðningu, sett ný útidyrahurð, lagaður þakkantur og stigi við gamla innganginn verður klæddur. Síðar á árinu er gert ráð fyrir að mála og laga salerni í húsinu.
Umsjón með verkinu er Björn Þór Imsland, umsjónarmaður fasteigna sveitarfélagsins Hornafjarðar.
HIE





Skrifa athugasemd