Fréttir
Jón ánægður með rauða litinn
Fagmennskan í fyrirrúmi
Mynd: HIE
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

23.03.2009 Fréttir

Leiktækjunum í sundlaugina komið fyrir

Unnið er að því að mála kanta laugarbakka og vaðlaug fyrir yngir kynslóðina

Á þessum myndum má sjá þann leiktækjabúnað sem áfastur verður vaðlauginni sem ætlað er að vera ævintýraland fyrir yngstu kynslóðina.  Um er að ræða þrjú leiktæki, trúð sem veitir vatni út um augu, nef, eyru og hatt, rennibraut fyrir yngri börnin sem er um 80 cm há og snákur sem veitir vatni út um hlið sér.  Króm og Hvítt sér um að festa leiktækin upp og tengja við dælubúnað sem staðsettur er í kjallara.

Málningarþjónusta Hornafjarðar hefur nýverið lokið við að mála heita potta, en annar potturinn verður með nuddi en hinn verður án nudds. Nú vinna málararnir að því að mála vaðlaugina og rennuna umhverfis laugina.  Verkið er á lokastigi en á næstu dögum skýrist hvenær hægt verður að opna laugina.

 

HIE

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica